Stefnukort Félags Sameinuðu þjóðanna

Stefnukort Félags Sameinuðu þjóðanna var samþykkt af stjórn við upphaf ársins 2012. Leiðarljósin eru talin hér að neðan og framtíðarsýn þess sömuleiðis.

   

Leiðarljós Félags Sameinuðu þjóðanna

  • Að stuðla að samræðum og samstarfi allra þjóða heims
  • Að vinna að því að treysta alþjóðafrið og öryggi

Framtíðarsýn Félags Sameinuðu þjóðanna

  • Að þorri þjóðarinnar styðji með beinum hætti alþjóðlegt þróunarstarf.
  • Að almenningur þekki til starfsemi Sameinuðu þjóðanna.
  • Að áhrifavöld í þjóðfélaginu hafi þekkingu á og starfi með Félagi Sameinuðu þjóðanna.
  • Að Ísland taki stöðu með þeim alþjóðalögum sem styðja við hugsjónir og markmið SÞ.
  • Að Félag Sameinuðu þjóðanna sé áhrifamikill vettvangur fyrir öfluga upplýsingagjöf um SÞ.

Málefnin sem félagið mun beina athygli sinni að á næstu þrjú árin eru:

  • mannréttindi
  • sjálfbær þróun 
  • friðar- og öryggismál.

Málefnaflokkarnir hafa áhrif á aðgerðaráætlunina eins og gefur að skilja.

Deilimarkmið eru einnig skjalfest og breytast þau frá ári til árs og móta verkefni hvers vetrar. Þau eru síðan nánar skilgreind með mælanlegum einingum þannig að stjórn félagsins getur með einföldum máta metið árangur starfsins útfrá markmiðum þess.