Þróunarstarf

Þróunarstarf Sameinuðu þjóðanna

Eitt hið veigamesta af lögboðnum hlutverkum Sameinuðu þjóðanna er að stuðla að betri lífskjörum, nægri atvinnu og efnahags- og félagslegum framförum og þróun. Sjötíu af hundraði alls starfs Sameinuðu þjóðanna og sérstofnana þeirra eru helguð þessum málaflokki, þar sem sú skoðun er höfð að leiðarljósi að forsenda fyrir varanlegum friði í heiminum sé útrýming fátæktar og aukin velferð fólks um heim allan.

Sameinuðu þjóðirnar eru betur í stakk búnar til að efla þróun en nokkur annar aðili í heiminum. Þær eru alls staðar nálægar og hið víðtæka umboð þeirra spannar félagslegar og fjárhagslegar þarfir jafnt sem þarfir á neyðarstundum. Sameinuðu þjóðirnar eru ekki fulltrúi neinna þjóðernis- eða viðskiptahagsmuna. Þegar stefnumarkandi ákvarðanir eru teknar hafa öll ríki atkvæðisrétt, fátæk jafnt sem auðug.

Málin tekin á dagskrá
Sameinuðu þjóðirnar hafa gegnt lykilhlutverki í því að skapa alþjóðlega sátt um aðgerðir í þróunarmálum. Allt frá því á sjöunda áratug 20. aldar hefur Allsherjarþingið hjálpað þjóðum heims að skilgreina áherslur og markmið með því að gefa út tíu ára áætlanir um stefnu í þróunarmálum á heimsvísu. Í þessum áætlunum hefur athyglinni verið beint sérstaklega að brýnustu málum hvers tíma, en jafnframt ævinlega verið lögð áhersla á þörf fyrir framfarir á öllum sviðum félagslegrar og efnahagslegrar þróunar. Sameinuðu þjóðirnar halda enn áfram að skilgreina ný markmið í þróunarmálum og má þar nefna mikilvæg svið á borð við sjálfbæra þróun, aukinn hlut kvenna, mannréttindi, umhverfisvernd og góða stjórnarhætti - sem og áætlanir um framkvæmd þessara markmiða.

Á leiðtogafundinum í september 2000, svokölluðum þúsaldarfundi, samþykktu leiðtogar heims nokkur þúsaldarmarkmið í þróunarmálum þar sem stefnt er að því að útrýma sárustu fátækt og hungri; veita öllum þegnum heims grunnmenntun; stuðla að jafnrétti kynjanna og auka áhrif kvenna; draga úr barnadauða; bæta heilsuvernd mæðra; berjast gegn alnæmi, malaríu og öðrum sjúkdómum; og tryggja sjálfbæra nýtingu umhverfisins. Stefnt er að því að þessum markmiðum verði náð í nokkrum áföngum fyrir árið 2015. Meðal markmiðanna eru þessi: að þeim fækki um helming sem hafa minna en dollar á dag til framfærslu; að komið verði á grunnmenntun fyrir alla jarðarbúa; að staða kynjanna verði jöfnuð á öllum skólastigum; að dregið verði stórlega úr barnadauða um leið og heilsuvernd mæðra verði aukin.

Þróunaraðstoð
Sameinuðu þjóðirnar og sérstofnanir þeirra reyna eftir ýmsum leiðum að þoka efnahagslegum og félagslegum málum áfram í átt að skilgreindum markmiðum.

Umboð sérstofnananna nær yfir nánast öll svið efnahags- og félagsmála þar sem mögulegt er að láta til sín taka. Stofnanirnar veita tæknilega aðstoð og liðsinna þjóðum heims á ýmsan annan hátt. Í samstarfi við Sameinuðu þjóðirnar aðstoða þær við stefnumótun, skilgreina kröfur og viðmiðunarreglur, veita stuðning og virkja fjármagn. Þannig útvegaði til dæmis Alþjóðabankinn yfir 17 milljarða bandaríkjadala í þróunarlán á árinu 2001 til meira en 100 þróunarlanda.

Náið samráð er milli Sameinuðu þjóðanna og sérstofnana þeirra og er það tryggt með milligöngu aðalsamráðsnefndar allra framkvæmdastjóra á vegum samtakanna, en í henni eiga sæti aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, forstöðumenn sérstofnana, sjóða og áætlana, Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar og Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar.

Með fulltingi aðalframkvæmdastjóra og Efnahags- og félagsmálaráðs er áætlunum og sjóðum Sameinuðu þjóðanna ætlað að framkvæma umboð samtakanna á sviði efnahags- og félagsmála. Árið 1997 setti aðalframkvæmdastjóri á laggirnar þróunarhóp Sþ, sem samanstendur af fulltrúum starfandi áætlana og sjóða. Þróunaráætlun Sþ, öflugasti styrktarsjóður samtakanna í þágu sjálfbærrar þróunar manna um heim allan, leggur sitt af mörkum til þess að uppfylla þúsaldarmarkmiðin sem áður voru nefnd. Barnahjálpin er í forystu þeirra stofnana Sameinuðu þjóðanna sem vinna að því að auka lífslíkur og vernd barna og efla þróun í þeirra þágu til langs tíma. Áætlanir Barnahjálparinnar ná til um það bil 160 landa og landsvæða og í þeim er áhersla lögð á bólusetningar, frumheilsugæslu, næringu og grunnmenntun.

Margar aðrar áætlanir Sameinuðu þjóðanna starfa í þágu þróunar í samvinnu við opinber yfirvöld og frjáls félagasamtök. Matvælaáætlunin er stærsta hjálparstofnun heims á sviði matvælaaðstoðar og sinnir jafnt neyðaraðstoð og þróunaraðstoð. Mannfjöldasjóður Sþ er öflugasti sjóður heims sem helgaður er mannfjöldaaðstoð. Hlutverk Umhverfisstofnunar Sþ er að hvetja til réttrar umgengni við umhverfið um víða veröld og Búsetusjóður Sþ aðstoðar fólk sem býr við heilsuspillandi aðstæður.

Ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um viðskipti og þróun er ætlað að efla alþjóðaviðskipti til þess að auka hlut þróunarlanda í hinu hnattræna hagkerfi. Í samvinnu við Alþjóðaviðskiptastofnunina, sem er sjálfstæð stofnun, aðstoðar ráðstefnan einnig þróunarlöndin við vöruútflutning og fer sú aðstoð fram fyrir milligöngu Alþjóðaviðskiptamiðstöðvarinnar.

Sameining og samstaða
Það færist í vöxt að Sameinuðu þjóðirnar og sérstofnanir þeirra sameini krafta sína til að taka á flóknum vandamálum sem krefjast sérfræðikunnáttu þvert á stofnanir, enda leggjast þær gegn því að ein og ein þjóð glími við slík vandamál á eigin spýtur.

Í Sameiginlegri áætlun Sþ gegn alnæmi og eyðni eiga átta stofnanir og áætlanir hlut að máli til þess að berjast gegn faraldri sem sýkt hefur meira en 57 milljónir manna um allan heim. Árið 1996 var hleypt af stokkunum Sérstöku Afríku-átaki þvert á stofnanir, en það er áætlun til 10 ára sem hljóðar upp á 25 milljarða bandaríkjadala. Þar sameinast nánast allar deildir Sameinuðu þjóðanna í einni sameiginlegri áætlun til þess að tryggja undirstöðumenntun, heilbrigðisþjónustu og matvælaöryggi í Afríku. Hnattræni umhverfisbótasjóðurinn er sjóður upp á 3,5 milljarða dala undir stjórn Þróunaráætlunar Sþ, Umhverfisstofnunar Sþ og Alþjóðabankans, og aðstoðar hann þróunarlönd að hrinda umhverfisáætlunum í framkvæmd.

Barnahjálpin, Þróunaráætlunin, Alþjóðabankinn og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin sameinuðu krafta sína árið 1998 og hleyptu af stokkunum herferð gegn malaríu, en sá sjúkdómur leggur meira en eina milljón manna að velli ár hvert. Forstöðumenn fyrirtækja, líknarfélög, frjáls félagsamtök og stjórnvöld einstakra ríkja hafa tekið höndum saman við Barnahjálpina, Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina og Alþjóðabankann í sameiginlegu átaki til að auka bólusetningar og þróa ný bóluefni.