Sjálfboðaliðastörf
UNV (www.unv.org) óskar eftir sérfræðingum úr ólíkum atvinnugreinum að gerast sjálfboðaliðar hjá Sameinuðu þjóðanna. UNV eða „Sjálfboðliða Verkefni Sameinuðu Þjóðanna“ er verkefni Sameinuðu Þjóðanna sem styður sjálfbærilega þróun lífskjara á heimsvísu í gegnum sjálfboðsliðastörf, með virkum sjálfboðliðum. Með að virkja þátttöku sjálfboðsliða í verkefnum Sameinuðu Þjóðanna, stuðlar það að friði og þróun í heiminum.
Helstu heimasíður:
Starfsnám
Sjálfboðliða verkefni Sameinuðu Þjóðanna gefur nemum, í starfsnámi hjá höfuðstöðum Sameinuðu Þjóðanna, tækifæri að bæta þekkingu og reynslu sem tengist námi svo sem alþjóðleg samskipti, fjölmiðlatengsl og félagsvísindi, þá að efla reynslu og menntun starfsnemans í gegnum hagnýta vinnu og gefa þeim innsýn inní verkefni Sameinuðu Þjóðanna.
UNV hefur frá árinu 1971 ráðið yfir 30.000 sjálfboðaliða til starfa í yfir 160 löndum í heiminum. Hæfniskröfur til að gerast sjálfboðaliði fyrir S.Þ. eru eftirfarandi:
- Háskólagráða eða tæknimenntun
- Nokkra ára starfsreynsla á viðeigandi sviði
- Lágmarksaldur er 25 ár (ath. engin hámarksaldur)
- Þekkingu allavega einu þessara mála; ensku, frönsku eða spænsku
- Hollusta við lögmál og gildi sjálfboðaliðastarfa
- Geta til að vinna í fjölþjóðlegu umhverfi
- Geta til að aðlagast erfiðum aðstæðum
- Mikil hæfni í mannlegum samskiptum og skipulagshæfileikar
- Reynsla af sjálfboðaliðastarfi og/eða vinnu í þróunarlandi er kostur
- Sálfboðaliðar fá ekki laun fyrir störf sín, þeir hljóta þó ýmis fríðindi, meðal annars:
- Flutningsstyrkur sem greiddur er í upphafi tímabils
- Vasapeningar sem greiddir eru mánaðarlega og ætlað er að koma til móts við mánaðarleg útgjöld
- Ferðakostnaður til og frá verkefnis í upphafi og lok tímabils er greiddur, ef staðsetning er önnur en heimaland umsækjanda
- Tryggingar og orlof.
Umsókn
Umsóknir til að gerast sjálfboðaliði fyrir S.Þ. verða að innihalda eftirfarandi:
- Umsóknir verða að vera á ensku.
- Umsókn verða að vera á MS WORD formi.
- Umsóknir verða að innihalda nýlegt CV.
- Umsóknir verða að innihalda hvatningar bréf þ.e. af hverju viðeigandi nemi eigi skilið að verða starfsnemi hjá UNV.