Útboð á verkefnum
Sameinuðu þjóðirnar leita til fjölda fyrirtækja út um allan heim ár hvert eftir þjónustu. Þau verkefni sem í boði eru hverju sinni eru auglýst á United Nations Global Marketplace.
Verkefnin eru eins fjölbreytt og þau eru mörg allt frá prentþjónustu fyrir aðalskrifstofuna í New York, til hönnunar kosningarkerfis í Afríku, endurbyggingar skólahúsnæðis í Asíu eða ráðgjafar úti um allan heim.
UN Procurement Division heldur utan um útboðsverkin fyrir hönd S.Þ. Ítarlegar upplýsingar um hvernig fyrirtæki eiga að snúa sér hafi þau áhuga á að bjóða í verk er að finna hér.
En fjölmargar undirstofnanir S.Þ. sjá sjálfar um útboð á verkefnum innan sinnar stofnunnar, eins og til að mynda Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna (UNDP), Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) og Alþjóðabankinn (WorldBank). Nánari upplýsingar er finna á vefsíðum viðkomandi stofnunar.