Barna- og ungmennaráð heimsmarkmiðanna

Eitt af meginstefum heimsmarkmiðanna er samvinna milli ólíkra hagsmunaaðila, þ.á m. ungmenna, við innleiðingu markmiðanna. Í ljósi þess, og einnig 12. og 13. gr. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem kveða skýrt á um rétt barna til að láta skoðanir sínar í ljós og til að hafa áhrif á málefni er þau varða, var árið 2018 ákveðið að virkja þátttöku ungmenna á Íslandi í gegnum barna- og ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.

Meginmarkmið ráðsins er að vekja athygli á heimsmarkmiðunum og sjálfbærri þróun, bæði meðal jafningja sem og samfélagsins í heild sinni. Ungmennaráðinu er ætlað að vera lifandi vettvangur þar sem heimsmarkmiðin og Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna eru höfð að leiðarljósi og rædd með gagnrýnum og lausnamiðuðum hætti. Ungmennum er með þessum hætti gefinn vettvangur til að vekja athygli á heimsmarkmiðunum og sjálfbærri þróun og skapa þannig jafningjum tækifæri til að láta rödd sína heyrast um fyrrgreind málefni.

Barna- og ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna samanstendur af tólf fulltrúum, víðast hvar af landinu, á aldursbilinu 13-18 ára. Ráðið fundar reglulega í eigin persónu og í gegnum fjarfundabúnað. Þá fundar ungmennaráðið árlega með ríkisstjórn og á jafnframt fulltrúa í Sjálfbærniráði Íslands. Fyrir stofnun Sjálfbærniráðsins átti ráðið árheyrnarfulltrúa í verkefnastjórn stjórnvalda um heimsmarkmiðin.

Hlutverk ráðsins er að fræðast og fjalla um heimsmarkmiðin ásamt því að koma áherslumálum sínum á framfæri og miðla gagnvirku efni á samfélagsmiðlum um markmiðin og sjálfbæra þróun. Það veitir jafnframt stjórnvöldum, bæði ríkisstjórn og Sjálfbæru Íslandi í gegnum Sjálfbærniráð, ráðgjöf við innleiðingu markmiðanna. Þá hefur ráðið verið eftirsótt til samráðs af hálfu fjölda ráðuneyta og opinberra stofnana í tengslum við stefnumótun og ýmiss konar viðburði.

Árið 2020 var starfsemi barna- og ungmennaráðsins færð frá UNICEF  á Íslandi yfir til embættis umboðsmanns barna. Þá var í fyrsta sinn árið 2022 kosið með lýðræðislegum hætti í ráðið á barnaþingi sem umboðsmaður barna boðar til. Núverandi ráð hóf störf í byrjun 2024 og rennur skipunartími þess út að tveimur árum liðnum.

Mynd / FSÞ – Vala Karen Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri FSÞ ásamt nýjum fulltrúum í Barna- og ungmennaráði heimsmarkmiðanna í janúar 2024.

Félag Sameinuðu þjóðanna hefur ávallt verið í góðum samskiptum við ráðið og leitar til þeirra í tengslum við mörg verkefni þess, meðal annars í tengslum við UNESCO-skólaverkefnið og Heimsins stærstu kennslustund, Alþjóðlega hamingjudaginn og í samkeppnum fyrir ungt fólk sem tengjast markmiðunum.

Mynd / FSÞ – Heimsins stærsta kennslustund 2023 í Salaskóla. Fulltrúar Barna- og ungmennaráðsins stýrðu kennslustundinni og opnuðu samkeppni ungs fólks í tengslum við mannréttindi og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

 

Guðlaug Edda Hannesdóttir, sérfræðingur hjá embætti umboðsmanns barna, heldur utan um starfsemi ráðsins.
Hægt að fylgjast með störfum Barna- og ungmennaráðs heimsmarkmiðanna á Facebook , Instagram og TikTok.