Störf hjá Sameinuðu þjóðunum

Sameinuðu þjóðirnar og stofnanir innan SÞ-kerfisins eru stórir alþjóðlegir vinnuveitendur og ráða starfsfólk úr fjölbreyttum faggreinum til starfa víðs vegar um heiminn.

Störf eru flokkuð eftir eðli starfs, menntun, reynslu og ábyrgð. Laun og önnur starfskjör taka mið af starfsflokki og staðsetningu.

Starf hjá Sameinuðu þjóðunum býður upp á tækifæri til að vinna í alþjóðlegu og fjölmenningarlegu umhverfi að verkefnum sem tengjast meðal annars friði og öryggi, mannréttindum, þróun, mannúðarmálum og sjálfbærni.

Laus störf hjá aðalskrifstofu Sameinuðu þjóðanna eru auglýst á UN Careers, þar sem einnig má finna upplýsingar um starfsflokka, ráðningarferli og önnur starfstækifæri.

Umsóknir fara eftir tegund starfs og geta umsækjendur verið boðaðir í mismunandi matsferli, svo sem skrifleg próf, hæfnimat eða viðtöl.

Sérstakar leiðir inn í störf hjá Sameinuðu þjóðunum

Auk hefðbundinna ráðninga eru ýmsar sérstakar leiðir fyrir fólk sem vill hefja starfsferil innan SÞ-kerfisins.

Young Professionals Programme (YPP)

Young Professionals Programme er samkeppnisleið fyrir unga sérfræðinga sem vilja hefja starfsferil hjá aðalskrifstofu Sameinuðu þjóðanna. YPP felur í sér sérstakt próf- og matsferli og er aðeins opið ríkisborgurum þeirra ríkja sem eru lítið eða ekki fulltrúuð í starfsliði aðalskrifstofunnar hverju sinni. Ísland er á lista þátttökuríkja árið 2026, sem gerir íslenskum ungum sérfræðingum kleift að sækja um YPP að uppfylltum öðrum skilyrðum. Slíkt tækifæri hefur ekki staðið Íslendingum til boða um langt árabil.

Junior Professional Officer (JPO)

JPO-verkefnið veitir ungum sérfræðingum tækifæri til að öðlast starfsreynslu innan Sameinuðu þjóðanna. Stöðurnar eru fjármagnaðar af þátttökuríkjum og eru auglýstar sérstaklega samkvæmt fyrirkomulagi hvers ríkis.

Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi auglýsir JPO-stöður í samstarfi við utanríkisráðuneytið, alla jafna árlega. Um er að ræða fjölbreytt störf hjá stofnunum og samtökum Sameinuðu þjóðanna víðs vegar um heiminn. Hægt að sjá stöður auglýstar á samfélagsmiðlum félagsins en þar er einnig að finna reynslusögur og innsýn í störf núverandi JPO á vettvangi.

Á undanförnum árum hafa íslenskir ungir sérfræðingar meðal annars starfað hjá Umhverfisstofnun SÞ (UNEP) í Kenía, Mannfjöldasjóði SÞ (UNFPA) í Úganda, Malaví og Sierra Leone, Matvælaáætlun SÞ (WFP) í Sierra Leone og Malaví, Flóttamannastofnun SÞ (UNHCR) í Úganda, Barnahjálp SÞ (UNICEF) í Kenía og UN Women í Jórdaníu og Tyrklandi.

Einnig eru í boði starfsnám, ráðgjafastörf, tímabundin störf og önnur tækifæri innan SÞ-kerfisins.