Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti aðildarumsókn Íslands þann 9. nóvember 1946. Íslendingar fengu aðild að Sameinuðu þjóðunum þann 19. nóvember 1946 og undirritaði Thor Thors, fulltrúi ríkisstjórnar Íslands yfirlýsingu um að Ísland samþykkti sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Árið 1947 var Thor Thors, sendiherra, skipaður fyrsti fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum og gegndi hann því starfi til ársins 1965.
Anna Jóhannsdóttir (2024-) er núverandi fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum.
Alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands og Sameinuðu þjóðirnar
Sameinuðu þjóðirnar og stofnanir tengdar SÞ-kerfinu gegna mikilvægu hlutverki í alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands. Ísland styður starf fjölmargra stofnana og sjóða og tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi sem miðar að því að draga úr fátækt, styrkja mannréttindi og jafnrétti, bæta lífsskilyrði og stuðla að sjálfbærri þróun, friði og öryggi.
Stefna Íslands um alþjóðlega þróunarsamvinnu 2024–2028 byggir meðal annars á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Yfirmarkmið stefnunnar eru útrýming fátæktar, virðing fyrir mannréttindum og bætt lífsskilyrði.
Mannréttindi og jafnrétti kynjanna, ásamt umhverfis- og loftslagsmálum, eru þverlæg áherslumál í þróunarsamvinnu Íslands.
Samstarf við stofnanir SÞ og tengdar alþjóðastofnanir
Í fjölþjóðlegri þróunarsamvinnu leggur Ísland sérstaka áherslu á samstarf við nokkrar stofnanir Sameinuðu þjóðanna og alþjóðastofnanir sem tengjast SÞ-kerfinu.
Þar á meðal eru:
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF), meðal annars á sviði réttinda barna, menntunar, heilbrigðis og grunnþjónustu.
Stofnun Sameinuðu þjóðanna um kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna (UN Women), með áherslu á jafnrétti kynjanna, réttindi kvenna og stúlkna og baráttu gegn kynbundnu ofbeldi.
Mannfjöldasjóður Sameinuðu þjóðanna (UNFPA), meðal annars á sviði kyn- og frjósemisheilbrigðis og -réttinda og jafnréttis.
Alþjóðabankinn (World Bank), sem er hluti af alþjóðlegu stofnanakerfi tengdu Sameinuðu þjóðunum og gegnir mikilvægu hlutverki í fjármögnun þróunar, baráttu gegn fátækt og uppbyggingu innviða og stofnana.
Í tvíhliða samstarfslöndum Íslands, Malaví, Úganda og Síerra Leóne, á Ísland einnig samstarf við stofnanir Sameinuðu þjóðanna um einstök verkefni.
Mannúðaraðstoð í gegnum Sameinuðu þjóðirnar
Stór hluti mannúðaraðstoðar Íslands fer í gegnum Sameinuðu þjóðirnar. Ísland styður meðal annars:
Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP), sem veitir neyðaraðstoð og vinnur að bættu fæðuöryggi.
Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR), sem vinnur að vernd og aðstoð við flóttafólk og fólk á flótta.
Samræmingarskrifstofu Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA), sem samræmir alþjóðleg viðbrögð við mannúðarkrísum.
Neyðarsjóð Sameinuðu þjóðanna (CERF), sem gerir SÞ kleift að bregðast hratt við þegar neyðarástand skapast.
Palestínuflóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna (UNRWA), sem veitir palestínsku flóttafólki meðal annars menntun, heilbrigðisþjónustu og neyðaraðstoð.
Með stuðningi við þessar stofnanir tekur Ísland þátt í sameiginlegum viðbrögðum alþjóðasamfélagsins við stríðsátökum, náttúruhamförum, hungri, fólksflótta og öðrum mannúðarkrísum.
Heimsmarkmiðin
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun eru mikilvægur grundvöllur þróunarsamvinnu Íslands. Þau tengja saman baráttuna gegn fátækt, mannréttindi, jafnrétti, loftslagsmál, frið og sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda.
Íslensk þróunarsamvinna tekur sérstaklega mið af markmiðum sem tengjast meðal annars jafnrétti kynjanna, heilbrigði, menntun, hreinu vatni, loftslagsmálum, sjálfbærri nýtingu hafsins og friði og réttlæti.
Ísland í alþjóðlegu samstarfi
Með þátttöku sinni í starfi Sameinuðu þjóðanna og samstarfi við stofnanir tengdar SÞ-kerfinu styður Ísland bæði langtíma þróunarstarf og viðbrögð við bráðum mannúðarkrísum. Samstarfið er þannig mikilvægur hluti af framlagi Íslands til alþjóðlegrar samvinnu og framkvæmdar heimsmarkmiðanna.