Flóttamannastofnun SÞ (UNHCR)

UNHCR logo

Skrifstofa Flóttamannafulltrúa SÞ heitir öðru nafni Sérlegur erindreki SÞ um málefni flóttamanna (e. United Nations High Commissioner for Refugees – UNHCR. The UN Refugee Agency) en gengur hversdaglega undir heitinu Flóttamannahjálp SÞ eða Flóttamannastofnun SÞ. Hér verður notast við heitið Flóttamannastofnun SÞ. Einnig er fjallað um yfirmanninn og Sérlegan erindreka þeirrar sömu stofnunar sem Flóttamannafulltrúa SÞ.

Flóttamannastofnun SÞ var upphaflega sett á laggirnar árið 1950 í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar í því skyni að hjálpa milljónum Evrópubúa sem höfðu flúið eða misst heimili sín í stríðinu. Flóttamannastofnun SÞ átti að starfa í þrjú ár og vera lögð niður þegar verkinu væri lokið en núna, 75 árum síðar er síðar Flóttamannastofnunin enn að sinna brýnum verkefnum um allan heim.

Hlutverk Flóttamannastofnunar SÞ er skilgreint í alþjóðalögum og -reglum sem frá árinu 1950. Árið 2003 jók Allsherjarþing SÞ við verksvið Flóttamannastofnunar SÞ með orðunum í lauslegri íslenskri þýðingu ,,þar til fundist hefur lausn á flóttamannavandanum”.

Flóttamannsáttmálinn frá árinu 1951 og viðaukar hans frá árinu 1967 eru tvö mikilvæg skjöl sem leggja grunninn að starfi Flóttamannastofnunar SÞ. 149 ríki vinna að markmiðum og eiga hlutdeild í öðru hvoru skjalanna eða þeim báðum. Skjölin tvö skilgreina hið brothætta hugtak flóttamaður og leggja línurnar um ýmis réttindi flóttafólks og skilgreina skyldur ríkja til að vernda flóttafólk. Flóttamannastofnun SÞ er verndari Flóttamannasáttmála SÞ frá árinu 1951 og viðauka frá árinu 1967.

Starfsmenn Flóttamannastofnunar SÞ vinna í 132 til 135 löndum og ríkjum um alla heim. Hvar svo sem flóttamenn er að finna vinnur Flóttamannastofnun SÞ náið með ólíkum ríkisstjórnum. Í slíku samstarfi er reynt að tryggja að Flóttamannasáttmála SÞ frá árinu 1951 sé framfylgt og að sáttmálinn sé virtur. Um það bil 90% af starfsfólki Flóttamannastofnunar SÞ eru á vettvangi þar sem þau aðstoða fólk sem eru á flótta frá heimkynnum sínum.

Allsherjarþing SÞ og Efnahags- og félagsmálanefnd SÞ (ECOSOC) hafa umsagnarrétt yfir allri starfsemi Flóttamannastofnunar SÞ. Flóttamannafulltrúi SÞ, sem er yfirmaður stofnunarinnar, er skipaður af Allsherjarþingi SÞ. Tvisvar á ári gefur Flóttamannastofnun SÞ út skýrslu um starfsemina sem Flóttamannafulltrúi SÞ ber ábyrgð á. Sömuleiðis er unnin fjárhagsáætlun fyrir Flóttamannastofnun SÞ sem Flóttamannafulltrúa SÞ hefur yfirumsjón með. Þannig ber Flóttamannafulltrúi SÞ höfuðábyrgð á allri starfsemi og yfirstjórn Flóttamannastofnunar SÞ.

Núverandi Flóttamannafulltrúi SÞ er Barham Salih frá Írak.  Hann er sá tólfti í röðinni sem gegnir þessari ábyrgðamiklu stöðu.

Starfsemi Flóttamannastofnunar SÞ teygir sig um alla heim og er því afar flókin og umfangsmikil. Á meðal verkefna stofnunarinnar eru ráðningar, að tryggja öryggi starfsmanna við hættulegar aðstæður, innkaup á heilbrigðisþjónustu og flugáætlunnum. Sérstakar deildir sem einkum gera út frá höfuðstöðvunum í Genf í Sviss sjá um ýmis lykilverkefni. Fyrir hönd Flóttamannastofnunar SÞ vinnur starfsfólk höfuðstöðvanna þar að alþjóðastjórnmálum, fjármálum og rekstri. Töluverður fjöldi svæðisbundinna skrifstofa tengja saman starfsemi svæðisskrifstofa og höfuðstöðva Flóttamannamannastofnunar SÞ í Sviss.

Kona með barn ber eldivið heim á Jövu. Fyrir aftan er kulnað eldfjall Bromo.

Meginhlutverk Flóttamannstofnunar SÞ er að tryggja réttindi flóttafólks og hælisleitenda og tryggja rétt flóttafólks og hælisleitenda að finna öruggt skjól í öðru ríki. Flóttamannastofnun SÞ vinnur líka að því að finna varanlegar úrlausnir á málefnum flóttamanna.

Í rúmlega hálfa öld hefur Flóttamannastofnun SÞ aðstoðað milljónir manna við að byrja líf sitt á nýjan leik og við breyttar a’stæður. Í þeim hópi eru flóttafólk, endurkomendur til upprunalands, fólk án ríkisfangs, fólk sem hefur flúið innanlands og hælisleitendur. Verndun fólks á flótta hefur skipt sköpum. Reynt hefur verið að aðstoða flóttafólk í vanda, vernda heilsu þeirra og tryggja aðgengi þeirra að menntun. Með því hefur verið unnt að draga úr áhrifum óstöðugs og rofins lífshlaups og skapa grundvöll fyrir bjartari framtíð.

Dæmi um starfsemi og verkefni Flóttamannastofnunar SÞ sem falla undir eftirfarandi sextán málaflokka:

  • Heimssamþykktin um flóttafólk (The Global Compact on Refugees);
  • málsvörn fyrir málstað flóttafólks og hælisleitenda;
  • fjárgjafir til málefna flóttafólks og hælisleitenda og þeirra sjálfra;
  • menntun flóttafólks og hælisleitenda;
  • umhverfismál, áföll og loftslagsbreytingar;
  • lifibrauð og efnahagslegar bjargir flóttafólks og hælisleitenda;
  • lýðheilsa flóttafólks og hælisleitenda;
  • skjól handa flóttafólki og hælisleitendum;
  • vinna gegn kynferðislegri misbeitingu, misnotkun og áreitni gegn flóttafólki og hælisleitendum;
  • almenn vinna að málefnum hælisleitenda, flóttafólks (og annarra sem flytja frá heimkynnum sínum);
  • samhæfing á aðstoð til flóttafólks og hælisleitenda;
  • vinna við að útrýma því að fólk sé ríkisfangslaust (árin 2014-2024 og áfram);
  • nýsköpun í málefnum flóttafóks og hælisleitenda;
  • verndun á lífi og limum flóttafólks og hælisleitenda;
  • tryggja öryggi þeirra sem eru á flótta; og,
  • almennar úrlausnir í málefnum flóttafólks og hælisleitenda.

Flóttamannastofnun SÞ heldur Alþjóðadag flóttamanna þann 20. júní ár hvert.

Flóttamannastofnun SÞ vinnur með öðrum stofnunum Sameinuðu þjóðanna að sambærilegum og sömu markmiðum, hér má sjá fáein dæmi:

  • með Barnahjálp SÞ (UNICEF) er unnið að því að bæta skráningu á fæðingum og á borgurum;
  • með Mannfjöldasjóð SÞ (UNFPA) er unnið að því að aðstoða ríkisstjórnir við að móta og framkvæma manntöl; og,
  • með Mannréttindaskrifstofu SÞ (OHCHR) er stutt við eftirlit við mannréttindi ríkisfangslausra einstaklinga.

Meginhlutverk umdæmisskrifstofu Flóttamannastofnunar SÞ í Norður-Evrópu eru eftirtalin átta atriði:

  • Að styðja við stjórnvöld í innleiðingu evrópskra og alþjóðlegra laga sem snúa að hælisleit og ríkisfangsleysi.
  • Að tryggja að hælisleitendur hafi aðgang að viðkomandi ríkjum og geti sótt um alþjóðlega vernd.
  • Að styðja við innlend stjórnvöld sem fara með mál hælisleitenda í þróun sanngjarnra, skilvirkra og vandaðra málsmeðferða í slíkum málum.
  • Að ráðleggja stjórnvöldum, samstarfsaðilum og hagsmunaaðilum um hvernig hjálpa megi flóttamönnum að aðlagast samfélaginu.
  • Að stuðla að því að stjórnvöld finni lausnir fyrir ríkisfangslausa einstaklinga innan sinna landamæra.
  • Að tryggja að öll þau sem Flóttamannastofnun SÞ lætur sig varða njóti réttinda með hliðsjón af aldri, kyni og fjölbreytileika og að stjórnvöld, samstarfsaðilar og hagsmunaðilar á svæðinu hvetji til og auðveldi þátttöku þeirra.
  • Að auka vitund og þekkingu um hlutskipti milljóna flóttamanna um heim allan og fjalla um mál er varða flóttamenn og hælisleitendur.
  • Að stuðla að því að starfsemi Flóttamannastofnunar SÞ um heim allan njóti bæði fjárhagslegs- og almenns stuðnings.

Ísland, flóttafólk og starfsemi Flóttamannastofnunar SÞ 

Nemendur í grunnskóla í Júba fylgjast með íþróttaleik og fagna. Tilefnið er alþjóðadagur meðvitundar um jarðsprengjur og útrýmingar á jarðsprengjum (e. International Day of Mine Awareness and Assistance in Mine Action).

Ísland styður Flóttamannastofnunar SÞ með reglubundnum fjárframlögum. Árið 2016 fjórfaldaði Ísland stuðning sinn við Flóttamannastofnun SÞ. Þannig lögðu íslensk stjórnvöld sitt af mörkunum vegna áskorana sem fylgdu aukins straums flóttafólks til Evrópu árið 2016. Það var gert með því að fjármagna mannúðaraðstoð vegna stríðsátaka í Sýrlandi og með móttöku flóttafólks.

Árið 2021 hófst samstarfsverkefni með UN Women í Tyrklandi til stuðnings sýrlenskum flóttakonum. Verkefnið snýst um að framfylgja jafnréttisskuldbindingum í mannúðarstarfi, þar á meðal á grundvelli ályktunar nr. 1325.

Heimildir og vefslóðir:

https://globalcompactrefugees.org

https://www.unhcr.org

https://www.refworld.org/cgi-bin/texis/vtx/rwmain

https://unstats.un.org/sdgs/report/20