Nýir félagar – verið hjartanlega velkomin.
Félagsaðild fylgja hvorki skuldbindingar né kröfur, og félagsgjöld eru valfrjáls. Allir búsettir á Íslandi geta orðið félagar – og jafnframt aðrir aðilar, félög, fyrirtæki og stofnanir, svo sem bókasöfn og skólar. Við hvetjum alla lesendur síðunnar til að fá fleiri til liðs við þetta 74 ára gamla félag og markmið þess.
Félögum berast fréttir með tölvupósti, auk þess sem vefsíður okkar, www.un.is, www.globalis.is eru reglulega uppfærðar. Allar uppfærslur á heimasíðunum eru tilkynntar á Fésbókarsíðu félagsins www.facebook.com/UNAIceland.
Félagið hefur metnað að birta upplýsingar um Sameinuðu þjóðirnar, stofnanir þess og verkefni, en ekki síður um starfsemi félagsins sjálfs.
Félagsmönnum sem og öllum almenningi býðst upplýsingaþjónusta um Sameinuðu þjóðirnar með því að senda fyrirpurn hér á vefnum.