Hlutverk Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi er að efla starfsemi Sameinuðu þjóðanna með samstarfi og samvinnu. Félaginu ber að vera leiðbeinandi afl í íslensku þjóðfélagi með áherslu á heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Félag Sameinuðu þjóðanna vinnur að því að efla þekkingu, skilning og umræðu um gildi og starfsemi Sameinuðu þjóðanna og leggur áherslu á að skapa vettvang fyrir menntun, þátttöku og samvinnu um alþjóðleg málefni – með sérstakri áherslu á ungt fólk, fræðslustofnanir og almenning.
Störf Félags Sameinuðu þjóðanna fela í sér að:
-
Vinna að markmiðum og gildum Sameinuðu þjóðanna á landsvísu.
-
Efla lýðræðislega og virka þátttöku barna og ungmenna í samfélagsmálum.
-
Stuðla að fræðslu og umræðu um Sameinuðu þjóðirnar, mannréttindi, sjálfbærni, jafnrétti og frið.
-
Tengja saman íslenskt samfélag við alþjóðlegar áherslur, með sérstakri áherslu á heimsmarkmiðin um sjálfbæra þróun.
Nokkur af meginverkefnum félagsins:
Samstarf við UNESCO-skóla á Íslandi: Þróun og framkvæmd menntunar til sjálfbærrar þróunar og hnattrænnar borgaravitundar, m.a. með námskeiðum, efnisgerð, viðburðum og tengingu við alþjóðadaga Sameinuðu þjóðanna.
Ungmennafulltrúar Íslands hjá SÞ (UNYD): FSÞ er í samstarfi við Landssamband ungmennafélaga (LUF) í tengslum við ungmenni sem eru lýðræðislega kjörnir fulltrúar Íslands á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Meðlimir sendinefndarinnar eru þannig fulltrúar í umboði ungs íslensks fólks í alþjóðlegri umræðu hjá Sameinuðu þjóðunum.
Þróun fræðsluefnis fyrir kennara og nemendur á öllum skólastigum um heimsmarkmiðin, mannréttindi, friðarmenningu og hnattræna borgaravitund. Dæmi um það er útgáfa bókar Þróunaráætlunar Sþ (e. UNDP), ‘Verður heimurinn betri?’.
Ungliðar hjá SÞ (JPO’s) sjá um að auglýsa eftir nýjum stöðum ungliða í samvinnu við utanríkisráðuneytið hjá ólíkum stofnunum Sameinuðu þjóðanna og fjalla um þau ólíku störf sem þau sinna um allan heim.
Almenn kynning og miðlun á fjölbreyttri starfsemi Sameinuðu þjóðanna, stofnunum og þróun í alþjóðamálum, bæði á vettvangi fjölmiðla, fyrir almenning, í skólum og í gegnum samfélagsmiðla.
Viðburðir og ráðstefnur í tengslum við alþjóðadaga SÞ (s.s. alþjóðlegan friðardag, mannréttindadag, alþjóða hamingjudaginn o.s.frv.).
Samstarf við íslensk stjórnvöld, borgaralegt samfélag og alþjóðleg samtök, m.a. í tengslum við setu Íslands í mannréttindaráði SÞ, framlag Íslands til þróunarsamvinnu, stöðumat íslensks borgarasamfélags í landrýniskýrslu Íslands til SÞ.
Með þessu starfi leitast FSÞ við að byggja upp tengsl milli heimsborgaravitundar og virkni í nærumhverfinu – og skapa þannig sterkari brýr milli skólasamfélags, almennings, stjórnvalda og alþjóðlegrar þátttöku Íslands.