Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna

Aðalframkvæmdastjórinn er æðsti embættismaður Sameinuðu þjóðanna og er skipaður af allsherjarþinginu samkvæmt tillögu öryggisráðsins til fimm ára í senn. Hann hefur yfirumsjón með starfsemi samtakanna.

Aðalframkvæmdastjórinn getur lagt fyrir öryggisráðið hvers kyns vandamál sem hann telur að ógna kunni heimsfriðnum og lagt fram tillögur um málefni sem tekin skulu upp í allsherjarþinginu eða í öðrum stofnunum Sameinuðu þjóðanna. Starfslið skrifstofunnar vinnur að framkvæmd ákvarðana Sameinuðu þjóðanna.

Portúgalinn, António Guterres, er núverandi aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna og hann hóf fyrsta kjörtímabil sitt í janúar 2017 og annað kjörtímabil sitt í janúar 2022. Áður en hann tók við stöðu aðalframkvæmdastjóra SÞ var hann flóttamannafulltrúi hjá Flóttamannastofnun SÞ.

Guterres lætur af störfum í desember 2026 og þó að það séu engin takmörk á hve mörg kjörtímabíl aðalframkvæmdastjóri má sitja hefur enginn til þessa setið lengur en í tvö kjörtímabil. Nýr aðalframkvæmdastjóri mun því taka við störfum í janúar 2027.

Fyrrverandi framkvæmdastjórar eru eftirfarandi:

  • 24. október 1945 – 1. febrúar 1946: Gladwyn Jebb, Bretlandi – var tímabundið starfandi aðalframkvæmdastjóri frá stofnun SÞ þar til Trygve Lie var kjörinn fyrsti aðalframkvæmdastjóri SÞ.
  • 1946–1952: Trygve Lie, Noregi.
  • 1953–1961: Dag Hammarskjöld, Svíþjóð.
  • 1961–1971: U Thant, Myanmar.
  • 1972–1981: Kurt Waldheim, Austurríki.
  • 1982–1991: Javier Perez de Cuellar, Perú.
  • 1992–1996: Boutros Boutros-Ghali, Egyptalandi.
  • 1997–2006: Kofi A. Annan, Ghana.
  • 2007–2016: Ban Ki-moon, Suður–Kóreu.