Lög Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi

1. grein

Markmið Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi er:

    • Að auka þekkingu og stuðnings almennings í landinu við Sameinuðu þjóðirnar.
    • Að samræma starf þeirra félagasamtaka sem leggja vilja lið sitt til þess að framkvæma hugsjónir Sameinuðu þjóðanna.
    • Að stuðla að aukinni samvinnu allra þjóða heims.
    • Að stuðla að alþjóðafriði og öryggi.
    • Að vinna að því í samvinnu við fjölmiðla og skóla að kynna Íslendingua fyrir hugsjónum og starfsemi Sameinuðu þjóðanna.

2. grein

Í Félagi Sameinuðu þjóðanna á Íslandi geta verið einstaklingar, félög, fyrirtæki og stofnanir, svo sem bókasöfn og skólar.

Heimilt er að kjósa heiðursfélaga úr hópi félagsmanna.

3. grein

Stjórn félagsins ákveður félagsgjöld og getur leitað eftir stuðningi aðila sem styðja vilja stefnumið félagsins.

4. grein

Aðalfundur Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi skal vera haldinn fyrir 1. júní ár hvert. Aðalfund skal boða skriflega með 14 daga fyrirvara. Rétt á fundarsetu hafa þeir meðlimir sem gerst hafa félagar eigi síðar en mánuði fyrir aðalfund.

Á aðalfundi skal gefin út skýrsla um starfsemi félagsins og fjárhag á liðnu starfsári. Starfsár og reikningsár félagsins er almanaksárið og skulu reikningar félagsins yfirfarnir af löggiltum endurskoðanda.

Aðeins á aðalfundi má bera upp tillögur um breytingar á lögum félagsins og skulu slíkar tillögur kynntar framkvæmdastjórn með viku fyrirvara. Til samþykktar þeirra þarf stuðning 2/3, tveggja þriðju hluta, fundarmanna.

Stjórn félagsins skal skipuð eigi færri en sjö mönnum og eigi fleiri en tólf mönnum. Aðalfundur félagsins ákveður fjölda stjórnarmanna hverju sinni sem skulu kosnir til tveggja ára í senn. Formaður og varaformaður skulu kosnir sérstaklega. Að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum. Stjórnin skal kosin á aðalfundi annað hvert ár og skal hittast eigi sjaldnar en átta sinnum á ári.

Framkvæmdastjórn skulu skipa formaður, varaformaður og framkvæmdastjóri og skal sinna þeim störfum sem stjórnin felur henni og samkvæmt þessum lögum.

Á aðalfundi skulu kosnir tveir endurskoðendur til tveggja ára.

Endurkosning manna í stjórn er heimil.

Falli atkvæði að jöfnu á stjórnarfundi ræður atkvæði formanns.

Stjórnin boðar til fundar í félaginu þegar henni þykir þörf á eða þegar fimmtíu félagar hið minnsta óska eftir því.

Stjórninni er heimilt að ráða framkvæmdastjóra til að annast daglegan rekstur félagsins.

5. grein

Lögheimili félagsins og varnarþing þess er í Reykjavík. Heimilt er að stofna einstakar deildir félagsins hvar sem er á landinu.

Breytingasaga
  • Samþykkt á aðalfundi Félags Sameinuðu þjóðanna 5. mars 1976.
  • Breyting á 2. grein laganna er varðar aðild, og 4. grein laganna er varðar fjölda manna í varastjórn samþykkt á framhaldsaðalfundi 21. maí 2007.
  • Breyting á 4. grein laganna er varðar staðsetningu, dagsetningu og boðun aðalfundar, endurskoðun reikninga, fjölda manna í stjórn jafnframt því sem ákvæði um varastjórn var fellt úr gildi, auk sérkjara varaformanns, kjörtímabil stjórnarmanna, framkvæmdastjórn, og framkvæmdastjóra; og 5. og 6. greinar sameinaðar undir 5. grein auk orðalagsbreytingar, samþykkt á aðalfundi 27. mars 2008. Sömuleiðis var ákvæði til bráðabirgða, um brottfall meðstjórnenda, frá árinu 1977 fellt úr gildi.
  • Breyting var gerð á 4. grein laganna á aðalfundi 30. janúar 2013, þess efnis að stjórn og endurskoðendur skulu kosnir til tveggja ára í senn.
  • Breyting var gerð á 4. grein laganna á aðalfundi 28. maí 2019, þess efnis að aðalfundur fari fram fyrir 1. júní annað hvert ár, fyrir breytingu var það 1. maí. Einnig var gerð sú breyting á sömu grein að í stað þess að stjórn skuli skipa níu menn þá skuli stjórn skipa eigi færri en sjö menn og eigi fleiri en tólf, á aðalfundi skal fjöldi stjórnarmanna ákveðinn í hvert sinn. Nýr málsliður bættist þá við í 4. grein sem kveður á um að falli atkvæði að jöfnu á stjórnarfundi þá ráði atkvæði formanns.
  • Breyting var gerð á 1. gr. laganna þar sem orðalagi var breytt úr „takmark“ í „markmið“. Breyting var gerð á 2. gr. laganna þar sem ákvæði þess efnis að að hægt væri að gerast ævifélagi í félaginu var tekið út og í stað þess sett inn ákvæði um að heimilt sé að kjósa heiðursfélaga úr hópi félagsmanna. Einnig voru lagðar til nokkrar breytingar á 4. gr. laganna. Fyrsta breyting kvað á um að aðalfundur skuli haldinn árlega í stað annars hvers árs. Önnur breyting var sú að stjórnarmeðlimir hittist reglulegar en áður, eða að minnsta kosti átta sinnum á ári, að undanskildu sumri og jólum. Þriðja breyting var að orðið „framkvæmdarstjóri“ yrði sett inn undir lok greinarinnar til að tryggja að ekki einungis stjórnarformaður og varaformaður skipi framkvæmdarstjórn. Breytingar þessar voru samþykktar á aðalfundi 31. maí 2023.