Ungmennafulltrúar Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum

 

Ungmennafulltrúar Íslands skipa sendinefnd Landssambands ungmennafélaga (LUF) hjá Sameinuðu þjóðunum. Ungmennafulltrúar eru lýðræðislega kjörnir af aðildarfélögum LUF og sækja viðburði Sameinuðu þjóðanna í umboði íslenskra ungmenna.

Sendinefndin er samstarfsverkefni LUF og Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi sem vinna að aukinni þátttöku Ungmennafulltrúa Íslands á viðburðum Sameinuðu þjóðanna (e. UN Youth Delegation Programme.) Ungmennafulltrúarnir sækja viðburði í samstarfi eftirfarandi ráðuneyti: Forsætisráðuneytið, umhverfis,- orku- og loftslagsráðuneytið, utanríkisráðuneytið, mennta- og barnamálaráðuneytið auk menningar- og viðskiptamálaráðuneytisins.

Markmið Félags Sameinuðu þjóðanna er að kynna hlutverk ungmennafulltrúanna fyrir börnum, ungmennun og almenningi á Íslandi. Félagið í samvinnu við LUF veitir sendinefndinni fræðslu og stuðning varðandi hlutverk sitt. Eitt helsta hlutverk FSÞ er einnig að stuðla að aukinni umfjöllun, t.d. með viðtölum, fréttaflutningi og þátttöku í viðburðum.