Norrænt samstarf
Systurfélög Félags Sameinuðu þjóðanna á Norðurlöndunum eru mjög öflug og Félag Sameinuðu þjóðanna á í góðu samstarf við þau. Samráðsfundir eru haldnir meðal félaganna árlega þar sem skipst er á hugmyndum enda fer mikið starf fram hjá félögunum þar sem starfa samtals um sextíu manns í fullu starfi.
Hafa systurfélögin boðið Félagi Sameinuðu þjóðanna á Íslandi endurgjaldslaust kynningar- og upplýsingaefni sem þau hafa hannað og framleitt í gegnum tíðina.
Í samræmi við almenn markmið félagsins, er verkefni Félags Sameinuðu þjóðanna að velja úr öllu því góða efni sem til er á Norðurlöndum, þýða það og staðfæra. Öll félögin halda úti heimasíðu og eru þær eftirfarandi:
- Finnland – www.ykliitto.fi
- Danmörk – www.fnforbundet.dk
- Noregur – www.fn.no
- Svíþjóð – www.fn.se
Evrópusamstarf
Evrópusamstarf hefur einnig verið farsælt en á þeim vettvangi höfðu félög Sameinuðu þjóðanna í Evrópu lengi starfað undir merkjum UNA-EU Liaison Group.
Í ársbyrjun 2007 var svo samþykkt að efla og skýra formið á samstarfinu frekar og var þá tekið upp nýtt nafn á samstarfshópnum: UNA Europe Network.
Haldnir er fundir á tveggja ára fresti, ýmist í Genf eða Brussel. Félag SÞ á Íslandi sótti síðast Evrópufund samtakanna í desember 2022 í Brussel.
IceMUN
Undirfélag Félags Sameinuðu þjóðanna, Icelandic Model United Nation (IceMUN), vann lengi mikilvægt hlutverk í því að mennta háskólanema um starfsemi hinna ýmsu stofnana Sameinuðu þjóðanna.
Model United Nations (MUN) er vettvangur þar sem nemendur koma saman og setja á svið starfsemi helstu stofnanna Sameinuðu þjóðanna á sem raunverulegastan hátt og takast á við aðkallandi vandamál í alþjóðasamfélaginu.
Þátttakendum er deilt niður á ákveðin lönd og eru því sendifulltrúar þeirra landa. Oftar en ekki hefur allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna verið sett á svið og allar formreglur ráðsins virtar.
Í mars 2026 verður haldin MUN ráðstefna fyrir ungt fólk í Reykjavík.

