Sjálfbær þróun er þróun sem mætir þörfum nútímans án þess að skerða möguleika komandi kynslóða á að mæta þörfum sínum.
Sagan hófst löngu áður en þú fæddist og hún mun halda áfram lengi eftir þinn dag.
Staðan er sú að sagan er ennþá þín að móta – þetta er saga mannkynsins og jarðarinnar sem við búum á.
Auglýsingarskrifstofan HUMAN fékk það hlutverk að búa til sjö stuttmyndir fyrir Sameinu þjóðirnar og voru þær frumsýndar á leiðtogafundinum í New York 24. september 2015, þar sem heimsmarkmið SÞ um sjálfbæra þróun voru samþykkt. Stuttmyndirnar varpa sýn á framtíð mannkynsins og hvetja til breytingar á stefnu í þróunarmálum.
Hér sýnum við þriðja myndbandið af sjö sem nefnist: „Tacking inequalities, empowering women and girls and leaving no one behind“.