STALDRIÐ VIÐ
António Guterres aðalframkvæmdastjóri hefur hleypt af stokkunum “Pause” nýju alheims-átaki þar sem fólk er hvatt til að staldra við eitt augnablik áður en það deilir færslum á netinu. Almenningur er hvattur til að heita því að hugsa sig tvisar um áður en efni er deilt á samfélagsmiðlum – #PledgetoPause. Tilefnið eru þær bábiljur sem vaða uppi á netinu um COVID-19.
Átakið er hluti af vitundarvakningu um rangfærslur og rangar og villandi upplýsingar sem þrífast á netinu. Hér er um að ræða hvatningu til fólks um að staldra við eitt augnablik og hugsa sig tvisvar um áður en það deilir fréttum sem það þekkir lítið til. Langtímamarkmiðið er að breyta hegðun notenda á samfélagsmiðlum.
„Rangar upplýsingar geta verið banvænar á tímum COVID-19 faraldursins. Þess vegna skulum við sverja þess eið að hugsa okkur um tvisvar áður en við deilum efni og gröfum þannig undan útbreiðslu villandi upplýsinga,“ sagði Guterres aðalframkvæmdarstjóri Sameinuðu þjóðanna.
Pause eða pásu-átakið er hluti af Verifiedfrumkvæði Sameinuðu þjóðanna. Því var hleypt af stokkunum í maí 2020 til að koma á framfæri aðgengilegum upplýsingu um heilbrigðismál. Áhersla er lögð á upplýsingar sem byggja á traustum vísindalegum grunni. Þá er Verified vettvangur jákvæðra frásagna um samstöðu gegn COVID-19.
#PledgeToPause:Byggt á rannsóknum
Átakið byggir á rannsóknum sem benda til að það kunni að skipta sköpum að staldra við andartak á samskiptamiðlum. Slíkt minnki líkur á að fólk dreifi yfirgengilegu eða tilfinningahlöðnu efni og dragi þar með úr dreifingu rangfærslna. Með þessu er vonast til að bæta megi almennt fjölmiðlalæsi. Markmiðið er að hjálpa notendum að koma auga á rangar upplýsingar og forðast að áframsenda slíkt efni til vina og kunningja.
Ætlunin er að ná til eins milljarðs manna fyrir árslok. Í dag 21.október ríður António Guterres á vaðið en búast má við að fjöldi áhrifamanna og þekktra einstaklinga bætist í hópinn. Þau munu sverja eið -#PledgetoPause- að því að staldra við og hvetja vini og fylgjendur að gera slíkt hið sama.
„Þegar rangfærslur þrífast, missir almeningur traust og gerir mistök sem grafa undan aðgerðum stjórnvalda og fólk hættir jafnvel eigin lífi vegna slíks“ segir Melissa Fleming framkvæmdastjóri upplýsingamála hjá Sameinuðu þjóðunum.