35 tungumál á menningarmóti í UNESCO skólanum Landakotsskóla

Í tilefni af alþjóðadegi menningalegrar fjölbreytni UNESCO var fjölbreytileikanum fagnað í Landakotsskóla í síðasta mánuði með verkefninu “Menningarmót – fljúgandi teppi”.

Menningarmótið er þverfagleg kennsluaðferð hugsuð til þess að varpa ljósi á styrkleika og fjölbreytta menningu og tungumál nemendanna með skapandi hætti. Hugmyndafræði Menningarmótsins er í góðu samræmi við áherslur UNESCO um viðurkenningu á fjölbreyttri menningu og heimsmarkmið 4.7 en þar segir m.a:

“…menntun sem er ætlað að efla sjálfbæra þróun og sjálfbæran lífsstíl, með því að hlúa að friðsamlegri menningu, með mannréttindum, kynjajafnrétti, alheimsvitund, viðurkenndri menningarlegri fjölbreytni og framlagi menningar til sjálfbærrar þróunar.”

Kristín R. Vilhjálmsdóttir, kennari og með MA í hagnýtri menningarmiðlun er hugmyndasmiður verkefnisins. Hún hefur mótað Menningarmótin í meira en tvo áratugi og leiðbeint við að innleiða verkefnið í fjölmörgum leik-, grunn- og framhaldsskólum á Íslandi og í Danmörku.

Í Landakotsskóla hófst menningarmótið með fræðslu fyrir kennarahópinn. Síðan var Kristín með kynningar fyrir alla hópana og unnið var með menningarhugtakið gegnum ýmsar miðlunarleiðir um allan skólann. Menningarmót var svo haldið föstudaginn 20. maí þar sem afrakstur vikunnar var til sýnis. Foreldrum og forráðamönnum var boðið í heimsókn til að sjá og heyra um verkefnið og um leið fá innsýn í þá fjölbreyttu menningu og hin ýmsu áhugamál barnanna.

6

Landakotsskóli er UNESCO skóli og hefur  skuldbundið sig til að vinna með heimsmarkmiðin og halda upp á að minnsta kosti tvo alþjóðlega UNESCO daga. Allur skólinn tók þátt í mótinu að þessu sinni  eða um 350 nemendur skólans. Á menningarmótinu galopnuðu nemendur sína persónulega heima og allar þær “fjársjóðskistur”  sem börnin hafa að geyma og uppgötvuðu þannig með nýjum aðferðum öll hin fjöldamörgu tungumál sem eru töluð á meðal nemendanna, en um 35 tungumál eru töluð í skólanum.

Stór og fallegur tungamálaregnbogi var skapaður í lok vikunnar með ölllum gildum nemendanna. Orðin vinátta, virðing, fjölbreytileiki, friður, sköpun, traust, umburðarlyndi, samvinna og hafa þau verið þýdd yfir á öll tungumál barnanna með aðstoð foreldra. Slíkt listaverk fylgir menningarmótsferlinu og er hugmyndin – að auki að það prýði veggi skólans á fallegan hátt – að  nemendur skólans geti speglað sig í bæði gildum og tungumálum verksins.

Frá skólastjóranum Ingibjörgu Jóhannsd.:

“Kennarar voru ánægðir með hversu einlægir og góðir kynnendur og hlustendur nemendur voru. Það er mjög verðmætt fyrir börnin að fá tækifæri til að segja frá sjálfum sér og sínum áhugamálum. Margs konar tengsl og þræðir myndast milli barnanna. Og það er líka mikilvægt fyrir okkur starfsfólkið að kynnast börnunum með þessum hætti.”

Fréttin er fengin af síðu Landakotsskóla.

 

Kristrún María, verkefnastjóri UNESCO-skóla á Íslandi var viðstödd viðburðinn sjálfan ásamt starfsnema hjá Félagi SÞ. Þær segja verkefni Kristínar um hið fljúgandi töfrateppi eiga vel við gildi UNESCO og henta fullkomlega fyrir skóla sem vinna eftir gildum og markmiðum UNESCO.

Viltu vita meira um menningarmót? 

www.menningarmot.is

www.kulturkompasset.dk