Tveir nýir UNESCO skólar

Tveir nýir UNESCO skólar bættust nýlega við UNESCO skólanetið, Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum og Laugarnesskóli.

UNESCO skólar á Íslandi eru því orðnir 14 talsins, einn leikskóli, fimm grunnskólar og átta framhaldsskólar. Þess má geta að Laugarnesskóli er fyrsti grunnskólinn á vegum Reykjavíkurborgar til að verða UNESCO skóli. Enn fleiri skólar bíða nú einnig eftir aðild en umsóknarferlið tekur fáeina mánuði.

Mennta- og barnamálaráðuneytið gerði nýlega fjögurra ára samning við Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi um UNESCO skólaverkefnið. Meginmarkmið samningsins eru að að styðja við innleiðingu á helstu þemum UNESCO-skóla, sem eru alþjóðasamvinna, starfsemi Sameinuðu þjóðanna, heimsmarkmiðin, friður og mannréttindi á leikskóla-, grunnskóla og framhaldsskólastigi. Markmið samningsins er einnig að styðja við framgang aðgerðar 8 í menntastefnu stjórnvalda, Raddir unga fólksins – virkt nemendalýðræði á öllum skólastigum; að styðja við stefnu um Barnvænt Ísland og að efla lýðræðis- og mannréttindamenntun.

Kristrún María Heiðberg er verkefnastjóri UNESCO skóla á Íslandi. Netfang hennar er kristrun@un.is

Embla og Laufey, fulltrúar 6. bekkjar í Réttindaráði Laugarnesskóla, með UNESCO skírteinið.

 

Nemendur í kynjafræði í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum með UNESCO skírteinið.