Samtal við þingmenn um þróunarsamvinnu

Frjáls félagasamtök í þróunarsamvinnu (FFÞ) buðu upp á samtal við þingmenn þann 17. nóv. síðastliðinn í Iðnó í gegnum fræðsluvettvanginn Þróunarsamvinna ber ávöxt.

Haldin voru fróðleg og áhugaverð erindi um þróunarsamvinnu og boðið upp á samtal þar sem fulltrúar viðkomandi félaga sátu fyrir svörum. Viðburðurinn, sem styrktur var af utanríkisráðuneytinu, var ætlaður þingmönnum sem taka ákvarðanir um málaflokkinn og þeim sem hafa áhuga á honum. Mæting var góð og spunnust áhugaverðar umræður um málaflokkinn. Vel þótti til takast og höfðu margir á orði að mikilvægt væri að halda viðburð sem þennan með reglubundnum hætti.


Einn þingmaður hafði þetta að segja:

,,Þetta var vel skipulagt. Upplýsingar voru á mannamáli, engar langlokur og náðuð þið að tengja okkur við bitran raunveruleika og hörmungar fólks á öllum aldri og kynjum i þróunarlöndum heimsins. Og ekki síst nauðsyn þess fyrir heiminn allan að taka af festu og ábyrgð á aðstæðum fólks sem þarf sannanlega á hjálp okkar að halda. Það er allt undir og þið komuð því vel til skila. Tilfinningin var einnig sú eftir fundinn að við Íslendingar erum lánsöm þjóð að hafa fagfólk með mikla þekkingu sem fer fyrir okkur i þróunar- og hjálparstarfi.‘‘

Markmið þróunarsamvinnu krefjast aukinnar umræðu, þar með talið mannúðaraðstoðar, og hvernig megi sem best nýta þá fjármuni sem settir eru í málaflokkinn þannig að þeir komi til móts við þarfir þeirra sem mest þurfa á aðstoð að halda.

Frjáls félagasamtök í þróunarsamvinnu (FFÞ) eru: ABC barnahjálp, Barnaheill, CLF á Íslandi, Hjálparstarf kirkjunnar, Kristniboðssambandið, Rauði Krossinn á Íslandi, SOS Barnaþorp, UNICEF á Íslandi og UN Women á Íslandi.

Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi hefur leitt fræðslu samtakanna á vettvangi Þróunarsamvinna ber ávöxt síðustu ár og hefur vel til tekist. Í fyrra var til að mynda gefinn út fræðsluþátturinn Stóra myndin: Covid og heimsbyggðin sem sýnd var á RÚV. Þáttinn má nálgast á Youtube síðu vettvangsins.