Ákall til grunnskóla landsins um að taka þátt í:
Heimsins stærsta kennslustund
Heimsins stærsta kennslustund er verkefni sem miðar að því að efla fræðslu um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og auka vitund nemenda um alþjóðamál og sjálfbærni. Þemað að þessu sinni er heimsmarkmið nr. 4 – Menntun fyrir alla.
Hvatt er til þess að allir grunnskólar landsins taki þátt í Heimsins stærstu kennslustund með því að nýta sér námsefni um heimsmarkmið 4, sem finna má á vef Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, https://www.un.is, undir Heimsins stærsta kennslustund 2022.
UNESCO-skólaverkefnið er samstarfsverkefni mennta- og barnamálaráðuneytisins og Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, en eitt forgangsmála verkefnisstjórnar sem vinnur að innleiðingu heimsmarkmiðanna hér á landi er að efla menntun og fræðslu þegar kemur að sjálfbærni, frið og mannréttindum. UNESCO-skólar eru um 12 þúsund talsins um heim allan í yfir 180 löndum. Áhersluatriði þeirra eru friður og mannréttindi, heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, alþjóðasamstarf og starfsemi SÞ. UNESCO-skólar á Íslandi eru nú 17 talsins, einn leikskóli, sex grunnskólar og tíu framhaldsskólar.
Það er von okkar að allir grunnskólar taki þátt í Heimsins stærstu kennslustund og að öll börn fái innsýn í þessi mikilvægu markmið Sameinuðu þjóðanna til framtíðar.
Kennsluleiðbeiningar-2022 Kennslustundin-2022
Ef spurningar vakna um fyrirkomulag, námsefni, útfærslur eða UNESCO-skóla má hafa samband við Kristrúnu Maríu Heiðberg, verkefnastjóra hjá Félagi Sameinuðu þjóðanna, kristrun@un.is