Á fjórða fundi Leiðtogaráðs Landssambands ungmennafélaga (LUF) þann 24. janúar var Isabel Alejandra Díaz kosin ungmennafulltrúi Íslands á vegum Sameinuðu Þjóðanna, á sviði mennta, vísinda og menningar. Næst flestu atkvæðin hlaut Benedikt Bjarnason, fulltrúi Ung norræn, og mun hann starfa sem varafulltrúi. Þetta er í fyrsta skipti kosið er á lýðræðislegan hátt í stöðu ungmennafulltrúa á sviði mennta, vísinda og menningar.

Isabel býr yfir nokkurri reynslu á sviðinu, en hún hefur setiðí háskólaráði HÍ, Röskvu, auk þess að hafa verið kjörin forseti Stúdentaráðs HÍ. Hún hefur starfað sem verkefnastjóri Tungumálatöfra og setið í ýnmsum hópum á sviði mennta-, menningar- og félagsmála, t.d. samráðsvettvangi um jafnrétti kynjanna á vegum Jafnréttisráðs og samhæfingarhópi stjórnvalda um atvinnu- og menntaúrræði.
Í framboðsræðu sinni sagði Isabel: „Ég er sannfærð um að hlutverk rannsókna, lista og nýsköpunarstarfs sé að skila þekkingu inn í samfélagið í takt við það sem það þarfnast hverju sinni, og að það sé órjúfanlegur þáttur þeirrar sjálfbærrar þróunar sem við viljum sjá í umhverfinu okkar. Það tengist óhjákvæmilega heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og nauðsyn þess að innleiðing þeirra sé skýr og markviss. Þessi tiltekna staða ungmennafulltrúa getur sannarlega verið liður í því að m.a. miðla starfsemi UNESCO til ungs fólks, skapa heildstæðari sýn á aðkomu þeirra og í senn verið rödd þess gagnvart stjórnvöldum þegar kemur að mennta, vísinda og menningarmálum.“

Isabel mun sitja á aðalráðstefnu UNESCO, í íslensku UNESCO nefndinni, sækja norræna samráðsfundi og ungmennaþing UNESCO í fyrir hönd íslenskra ungmenna.
Skipun og þátttaka ungmennafulltrúans er samstarf LUF, Félags Sameinuðu Þjóðanna á Íslandi og menningar- og viðskiptaráðuneytisins.
Heimild: Landssamband ungmennafélaga
Nánar um fréttina hér.