‘Mannréttindi í réttlátri virðiskeðju’ – hliðarviðburður Janúarráðstefnu Festu

Viðburður skipulagður af Festu í samstarfi við Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, UN Women á Íslandi, UNICEF á Íslandi, Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og UN Global Compact á Íslandi og er hliðarviðburður í tengslum við Janúarráðstefnu Festu.

Viðburðurinn er opinn öllum og er haldinn í viðburðarsal Arion banka í Borgartúni, 3. febrúar kl. 10:00 – 12:00.

Boðið verður upp á léttar veitingar frá 9:30.  Skráning er nauðsynleg.

 

Virðiskeðjur nútíma fyrirtækja hafa snertifleti við ótal einstaklinga um allan heim. Við vitum að víða er pottur brotinn og arðsöm framleiðsla byggir oft á bágum mannréttindum eða jafnvel barnaþrælkun.

Það er því mikil vinna framundan við að tryggja að í innlendum sem alþjóðlegum virðiskeðjum viðgangist ekki brot á eðlilegum réttindum heldur þvert á móti sé unnið að því að bæta aðstæður og tækifæri starfsfólks.

Á viðburðinum fáum við að heyra frá sérfræðingum. fyrirtækjum og ungmennum sem öll hafa ólíka innsýn á stöðu mannréttinda í virðiskeðjum. Þá er þetta einstakt tækifæri fyrir fyrirtæki til að kynna sér Heimsmarkmiðasjóð atvinnulífsins.

Dagskrá  

  • Opnunarávarp frá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra
  • Dr. Mikael Allan Mikalesson sérfræðingur á sviði loftslagsstefnumótunar hjá Stockholm Environment Institute (SEI)
  • Guðný Camilla Aradóttir, samskipta- og sjálfbærnistjóri IKEA. – Hvernig hefur IKEA unnið með sína virðiskeðju þegar kemur að því að tryggja mannréttindi allra sem að henni koma.
  • Erindi frá tveimur fyrirtækjum sem hafa hlotið styrk úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífsins
    66° Norður og VAXA Technology
  • Kynning á nýjum vegvísi Festu um félagslega sjálfbærni

Fundarstjóri verður Pia Hansson forstöðumaður Alþjóðamálstofnunar Háskóla Íslands

Pallborð þar sem við heyrum frá ungu fólki með fjölbreytta reynslu og bakgrunn:

  • Sumitru Basnet frá Nepal, framhaldsskólanemi og fyrrverandi fórnarlamb barnaþrælkunar
  • Hadia Rahman frá Afganistan, nemi
  • Stefanía Sigurdís Jóhönnudóttir, ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði mannréttinda

Panelstjóri: Pétur Hjörvar Þorkelsson verkefnastjóri Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi

Arion banki er styrktaraðili viðburðarins.

 

Þessi frétt er unnin úr tilkynningu Festu í tengslum við hliðarviðburðinn.