Félag Sþ endurnýjar samstarfssamning við utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðuneytið og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi undirrituðu fyrr í vikunni endurnýjaðan samstarfssamning. Samningurinn leggur grunn að áframhaldandi fræðslu- og kynningarstarfi um Sameinuðu þjóðirnar, heimsmarkmiðin og alþjóðlegar áskoranir samtímans – en hann er í gildi til ársloka 2028.

Samstarfið byggir á áralangri samvinnu, en Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og utanríkisráðuneytið hafa starfað saman að kynningu á málefnum Sameinuðu þjóðanna í yfir 75 ár.

Endurnýjun samningsins tryggir félaginu aukinn fyrirsjáanleika í starfi og styrkir mikilvægan vettvang til að miðla upplýsingum um starf Sameinuðu þjóðanna til almennings.

Markmið samningsins er meðal annars að efla þekkingu almennings, ekki síst ungs fólks, á alþjóðlegri þróunarsamvinnu og stuðla að virkri þátttöku borgarasamfélagsins í málefnum sem snerta sjálfbæra þróun og mannréttindi. Samstarfssamningurinn skapar félaginu aukið svigrúm til að efla starfsemi sína til muna, með skýra áherslu á að styrkja þekkingu og áhuga ungs fólks á Sameinuðu þjóðunum, þróunarsamvinnu og alþjóðamálum almennt. Í því felst meðal annars áframhaldandi uppbygging verkefna á borð við Model UN ráðstefnur, markviss efling á starfi ungmennafulltrúa Íslands til Sþ og fjölbreytt fræðslustarf sem miðar að því að virkja ungt fólk til þátttöku og auka þekkingu á framlagi Íslands á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, meðal annars á sviði alþjóðlegrar þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoðar.

Mynd / frá vinstri: Vala Karen Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri Félags Sþ, Birna Þórarinsdóttir, Framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Utanríkisráðherra, Stella Samúelsdóttir, Framkvæmdastýra UN Women á Íslandi.