Sérstök sýning á heimildarmyndinni The Veto

Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands halda sérstaka sýningu á heimildarmyndinni The Veto  í Bíó Paradís þann 22. apríl. Eftir myndina verða stuttar pallborðsumræður með leikstjóra myndarinnar, Tim Slade, og góðum gestum sem verða tilkynntir þegar nær dregur.

The Veto er áhrifamikil heimildarmynd sem varpar ljósi á neitunarvald fastra meðlima (P5) öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Í 80 ár hefur þetta vald verið stöðugt til umræðu og þó ólíklegt sé að neitunarvaldið verði afnumið vekur beiting þess upp alvarlegar spurningar, sérstaklega þegar því er beitt í tengslum við þjóðarmorð, stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyni. Í myndinni ræða leiðandi sérfræðingar á alþjóðavettvangi breytingar og raunhæfar leiðir til að rjúfa pattstöðu innan öryggisráðsins og hvernig hægt sé að draga úr hættu á frekari stórátökum.

The Veto er brýn og mikilvæg heimildarmynd sem á ríkt erindi við öll sem hafa áhuga á alþjóða- og öryggismálum.