Aðalfundur FSÞ 2026

Aðalfundur Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi verður haldinn miðvikudaginn 18. maí 2026 kl. 16:00 í Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42.

Á dagskrá fundarins verða hefðbundin aðalfundarstörf, m.a.:

  • Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  • Ávarp formanns sem opnar aðalfund.
  • Formaður og framkvæmdastjóri fara yfir verkefni og viðburði félagsins á starfsárinu, ásamt kynningu á rekstrar- og efnahagsreikningi fyrir árið 2025.
  • Ársreikningur lagður fram til samþykktar.
  • Sandra Gunnarsdóttir, sagnfræðinemi við HÍ, kynnir sögu FSÞ á árunum 1948–1980 sem hún ritaði nýlega undir leiðsögn Guðna Th. Jóhannessonar.

Að fundi loknum verður boðið upp á léttar veitingar og samræður. Öll sem eru í félaginu eru sérstaklega hvött til þess að mæta en rétt á fundarsetu hafa þeir meðlimir sem gerst hafa félagar eigi síðar en mánuði fyrir aðalfund.