Auglýst eftir fræðslustjóra

Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi leitar að drífandi og lausnamiðuðum fræðslustjóra til að leiða fræðslu- og þekkingarstarf félagsins.

Í starfi fræðslustjóra felst annars vegar þróun og uppfærsla fræðsluefnis um Sameinuðu þjóðirnar, stofnanir þeirra, þróunarsamvinnu og heimsmarkmiðin (m.a. fræðslupakkar, greinaskrif, fræðsluerindi og efni fyrir vef og fræðsluvettvanga), og hins vegar daglegt utanumhald og þróun UNESCO-skólaverkefnisins. Það felur m.a. í sér regluleg samskipti og samstarf við skóla, kennara og samstarfsaðila, þróun kennsluefnis og námskeiða, eftirfylgni og gæðastýringu, sem og umsjón og uppfærslur á fræðsluefni á www.globalis.is.

Um er að ræða starf í 100% starfshlutfalli frá og með júní. Möguleiki á heimavinnu einn dag í viku. Skoða starf hér.

Nánari upplýsingar veitir Vala Karen Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri, í síma 552-6700 eða á netfanginu vala@un.is.