Allsherjarúttekt SÞ á stöðu mannréttinda: Samráðsfundur félagasamtaka

Í dag hélt Félag Sameinuðu þjóðanna samráðsfund vegna allsherjarúttektar (UPR) Sameinuðu þjóðanna á stöðu mannréttinda. Frjálsum félagasamtökum var boðið að koma og bera saman bækur sínar og ræða skuggaskýrsluskrif félagasamtaka.

Vel var mætt á fundinn og sköpuðust góðar og uppbyggilegar umræður um stöðu mannréttinda á Íslandi. Fundargestum bauðst tækifæri til að kynna sín áherslumál í sambandi við skuggaskýrslu félagasamtaka um stöðu mannréttinda á Íslandi og ræða hvernig vinna megi saman að skýrslunni. Þátttaka ungs fólks og mikilvægi þess var einnig til umræðu á fundinum og því velt fram hvort senda ætti ungmennafulltrúa á UPR-info pre session fyrir hönd Íslands.

Fundargestir ræddu mikilvægi mannréttinda á Íslandi sem og bakslag í mannréttindum, bæði á landsvísu og í heiminum. Áhyggjru af fyrirhuguðum brottfarastöðvum fyrir fólk sem á að vísa úr landi voru fundargestum hugleiknar sem og takmörkuð úrræði fyrir þolendur mansals hér á landi.

Vonir standa til að hægt sé að halda annan samráðsfund á næstunni með ungmennaráðum og -félögum.