Marta Goðadóttir ráðin fræðslustjóri FSÞ

Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi hefur ráðið Mörtu Goðadóttur í starf fræðslustjóra og hefur hún störf 1. september næstkomandi. Marta kemur til félagsins með víðtæka reynslu af fræðslu, miðlun, verkefnastjórnun og alþjóðamálum.

Sem fræðslustjóri mun Marta leiða fræðslu- og þekkingarstarf FSÞ, þar á meðal þróun fræðsluefnis um Sameinuðu þjóðirnar, heimsmarkmiðin, alþjóðasamvinnu og mannréttindi. Hún mun einnig hafa umsjón með UNESCO-skólanetinu á Íslandi og styðja við skóla í tengslum við önnur fræðsluverkefni félagsins.

Marta hefur undanfarin fimm ár starfað sem markaðs- og samskiptastjóri Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, þar sem hún hefur meðal annars borið ábyrgð á ásýnd sviðsins, fjölmiðlasamskiptum, samfélagsmiðlum, vefsíðu og rannsóknarmiðlun.

Áður starfaði Marta í sjö ár sem kynningarstýra hjá UN Women á Íslandi. Þar leiddi hún kynningar- og fjölmiðlastarf samtakanna, hélt fræðsluerindi og stýrði stórum fræðslu-, kynningar- og fjáröflunarverkefnum, meðal annars í tengslum við vettvangsferðir til Jórdaníu og Malaví og verkefni í samstarfi við RÚV.

Marta hefur einnig starfað sem blaðakona og sinnt kennslu á fjölbreyttum skólastigum. Hún hefur því sterkan bakgrunn í textagerð, fræðslu og miðlun mannréttinda, jafnréttis og alþjóðamála til ólíkra hópa.

„Við erum ótrúlega ánægð að fá Mörtu til liðs við okkur. Hún kemur með sterka reynslu, skýra sýn og mikinn áhuga á því að tengja alþjóðamál við reynsluheim ungs fólks. Fræðslustarfið er ein af grunnstoðum félagsins og við hlökkum til að þróa það áfram með Mörtu,“ segir Vala Karen Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.

Marta segist hlakka til að hefja störf hjá FSÞ og taka þátt í að efla fræðslu um Sameinuðu þjóðirnar og alþjóðamál á Íslandi.

„Ég hlakka mikið til að ganga til liðs við Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og fá tækifæri til að byggja áfram upp fræðslu- og þekkingarstarf félagsins sem vinnur gríðarlega vandað og öflugt starf. Alþjóðasamvinna, mannréttindi og heimsmarkmiðin snerta okkur öll og mér finnst sérstaklega mikilvægt að miðla þessum viðfangsefnum á skýran, lifandi og aðgengilegan hátt til ungmenna og almennings,“ segir Marta.