Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi ásamt utanríkisráðuneytinu bjóða til kynningarfundar um ungliðastöður á vegum Sameinuðu þjóðanna, 21. ágúst.
Fundurinn verður rafrænn og hefst hann kl. 11:30.
Hlekkur á fundinn og dagatalsboð er aðgengilegt hér:
Ungliðastöður hjá Sameinuðu þjóðunum
Dagskrá fundarins er svohljóðandi:
11:30 – Eva Harðardóttir, formaður Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi,
Fundarstgjórn og opnunarerindi
11:40 – Þórhildur Elísabet Þórsdóttir, Ungliði hjá Mannfjöldasjóði Sþ í Kampala, Úganda.
Þórhildur hefur verið ungliði í tæp tvö ár og mun segja stuttlega frá sinni reynslu fram til þessa.
12:00 – Pétur Hjörvar Þorkelsson, Verkefnastjóri hjá Félagi Sþ og fyrrv. ungliði hjá UNICEF í Kenía). Pétur fer yfir umsóknarferlið og deilir hagnýtum ráðum fyrir umsækjendur.
12:10 – Jónas Haraldsson, yfirmaður mannúðaraðstoðar, skrifstofa alþjóðapólitískra mála, utanríksráðuneytinu.
Jónas fer yfir mannúðaraðstoð íslenskra stjórnvalda og helstu áherslur ásamt því að fara yfir JPO samstarfið við SÞ.
12:20-12:30 Spurningar og svör
Að fundinum loknum mun upptaka verða aðgengileg á Youtube rás Félagsins.
Velkomið að hafa samband varðandi fundinn á felag@un.is. Athugið að Utanríkisráðuneytið svarar spurningum um ungliðastöðurnar sjálfar.
Á vegum Sameinuðu þjóðanna (SÞ) er starfrækt ungliðaverkefni (e. Junior Professional Officer Programme) þar sem ungu fólki er gefið tækifæri á að starfa á vegum stofnana SÞ undir handleiðslu reynslumikilla sérfræðinga. Ungliðastöður hjá Sameinuðu þjóðunum eru opnar fyrir íslenska ríkisborgara 32 ára og yngri (fæðingarár 1993 og síðar). Sótt erum á Starfatorgi.
- Flóttamannastofnun SÞ (UN High Commissioner for Refugees, UNHCR) óskar eftir að ráða ungliða á sviði verndar gegn kynbundnu ofbeldi (e. Associate Protection Officer – Gender-based violence, GBV) á landaskrifstofu UNHCR í Kampala í Úganda.
- Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (World Food Programme) óskar eftir að ráða ungliða á sviði skólamáltíða (e. Programme Policy Officer, School Feeding) á landaskrifstofu Matvælaáætlunar SÞ í Lilongwe, Malaví.