Rania Dagash-Kamara, aðstoðarframkvæmdastjóri Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (e. World Food Programme, WFP) á sviði samstarfs og nýsköpunar, heimsótti Mannréttindahúsið í gær þar sem hún fundaði með Félagi Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, fulltrúum íslenskra félagasamtaka sem starfa að mannúðar- og alþjóðamálum og ungmennafulltrúa Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði sjálfbærrar þróunar.
Með Raniu í för voru Andreas Hansen, yfirmaður Norðurlandaskrifstofu WFP í UN City í Kaupmannahöfn, og Emma Leerskov Bak, verkefnastjóri samstarfs hjá WFP.
Fundurinn var liður í heimsókn Raniu til Íslands. Á meðan dvöl hennar stendur fundar hún meðal annars með forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, utanríkismálanefnd Alþingis og fulltrúum utanríkisráðuneytisins, auk þess sem hún á samtöl við ungliðahreyfingar stjórnmálaflokka, einkageirann og UN Global Compact á Íslandi.
Rania er hluti af yfirstjórn Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna og leiðir samstarf stofnunarinnar við alþjóðlega samstarfsaðila, alþjóðlegar fjármálastofnanir og samstarfsríki, auk fjáröflunar og vaxandi starfs WFP á sviði nýsköpunar. Matvælaáætlunin er ein stærsta mannúðarstofnun heims og vinnur að neyðaraðstoð, bættu fæðuöryggi og auknum viðnámsþrótti samfélaga.
Á fundinum var rætt um breytt landslag mannúðarstarfs, alþjóðlegt fæðuöryggi og áhrif vaxandi fjármögnunarvanda á starf mannúðarsamtaka. Sérstaklega var rætt um þá þreföldu áskorun sem nú blasir við í alþjóðlegum birgðakeðjum, þar sem átök hafa samtímis áhrif á þrjár mikilvægar siglingaleiðir: Hormuz-sundið, Rauðahafið og Svartahafið.
Þessar siglingaleiðir eru lykilæðar fyrir flutning matvæla, eldsneytis og áburðar. Truflanir í Hormuz-sundi geta haft áhrif á olíu- og áburðarflutninga, átök og óöryggi við Rauðahafið hafa raskað siglingum um Bab-el-Mandeb og Súez-skurðinn, og stríðið í Úkraínu heldur áfram að skapa óvissu um kornútflutning um Svartahafið. Þegar þrýstingur myndast á allar þrjár leiðirnar samtímis eykst hættan á því sem WFP hefur lýst sem „þreföldum flöskuháls“, með hækkandi flutnings-, eldsneytis- og matvælakostnaði og aukinni hættu á fæðuóöryggi.

Rania benti á að áhrifin nái langt út fyrir þau svæði þar sem átök eiga sér stað. Hærra eldsneytisverð hefur áhrif á alla fæðukeðjuna, frá áburðarframleiðslu og uppskeru til vinnslu og flutninga matvæla, og aukinn kostnaður hefur jafnframt bein áhrif á getu mannúðarstofnana til að koma aðstoð til fólks í neyð.
Hún vakti einnig athygli á því að áhrif truflana á flutning áburðar og eldsneytis komi ekki alltaf strax fram heldur geti orðið sýnileg mánuðum síðar í minni uppskeru og hærra matvælaverði. Því geti afleiðingar ástandsins haldið áfram að magnast og árið 2027 orðið sérstaklega krefjandi fyrir alþjóðlegt fæðuöryggi og mannúðarstarf.
Fundargestir ræddu jafnframt hlutverk borgarasamfélagsins og lítilla ríkja í alþjóðlegu mannúðarstarfi, möguleika á nýjum samstarfsformum og fjármögnun, og hvernig félagasamtök hér á landi geti lagt sitt af mörkum í breyttu alþjóðlegu umhverfi.
