Fánadagur heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna verður haldinn 25. september 2026. UN Global Compact á Íslandi og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi hvetja fyrirtæki, stofnanir, skóla, félagasamtök og sveitarfélög til að taka þátt og styðja heimsmarkmiðin með sýnilegum hætti.
Fánadagurinn er hluti af alþjóðlega framtakinu #TogetherForTheSDGs – Saman fyrir heimsmarkmiðin, sem hófst árið 2019 og hefur vaxið ár frá ári. Hundruð fyrirtækja, stofnana, félagasamtaka, skóla og sveitarfélaga víða um heim taka þátt með því að flagga fána heimsmarkmiðanna. Þannig sýna þátttakendur samstöðu, vekja til umræðu og hvetja til frekari aðgerða í þágu sjálfbærrar þróunar.
Hver geta tekið þátt?
Skólar, félagasamtök, sveitarfélög, fyrirtæki og stofnanir sem vinna að heimsmarkmiðunum eru hvött til að taka þátt með rafrænum hætti og vekja athygli á heimsmarkmiðunum á samfélagsmiðlum.
Við hvetjum sérstaklega skólasamfélagið, félagasamtök og ungt fólk til að nýta daginn til að miðla verkefnum, hugmyndum og sögum sem tengjast heimsmarkmiðunum.
Þátttakendur eru hvattir til að taka myndir og myndbönd af fánanum og deila á eigin miðlum þann 25. september.
Öll þau sem eiga heimsmarkmiðafána hvetjum við til að flagga, ef áhugi er fyrir að eignast fána er hægt að haft samband við felag@un.is.
Þau sem geta ekki flaggað eru hvött til að„flagga rafrænt“ en fánamyndin er aðgengileg hér: Fánadagurinn | Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi
Aðeins fjögur ár til 2030
Nú eru aðeins fjögur ár þar til tímamörk heimsmarkmiðanna renna út árið 2030. Samkvæmt framvinduskýrslu Sameinuðu þjóðanna frá júlí 2026 eru aðeins 36% markmiðanna á réttri leið.
Það er því enn mikið verk óunnið. Fánadagurinn er tækifæri til að minna á að hvert framtak skiptir máli og að árangur krefst þátttöku stjórnvalda, atvinnulífs, sveitarfélaga, félagasamtaka, skóla og almennings.
Lesa The Sustainable Development Goals Report 2026
Við vonum að sem flest jafnframt kynni sér hvernig hægt er að leggja sitt af mörkum í daglegu lífi. Fræðsluefnið Good Life Goals er meðal leiða til að tengja heimsmarkmiðin við einfaldar ákvarðanir og aðgerðir í hversdagslífinu.
Ungt fólk gegnir sérstaklega mikilvægu hlutverki í þeirri vegferð. Hugmyndir, þátttaka og frumkvæði ungs fólks verða lykilatriði í því að hraða aðgerðum og finna nýjar leiðir til að ná heimsmarkmiðunum.
Tökum þátt 25. september og sýnum að við stöndum saman fyrir heimsmarkmiðunum.
#TogetherForTheSDGs