Þann 15. október 2026 verður haldið málþing í Háskóla Íslands þar sem kynnt verður MIRA, nýtt rannsóknar- og skólaþróunarverkefni um hnattræna borgaravitund. Verkefnið hlaut nýverið styrk úr Menntarannsóknarsjóði mennta- og barnamálaráðuneytis og býðst öllum UNESCO-framhaldsskólum að taka þátt í því. Nú þegar hafa níu skólar staðfest þátttöku sína.
Á málþinginu verður fjallað um tækifæri og áskoranir menntunar til hnattrænnar borgaravitundar, þátttöku ungs fólks í samfélaginu og hlutverk skóla í að efla gagnrýna hugsun, lýðræðisvitund og samfélagslega ábyrgð.
Meðal fyrirlesara eru:
- Dr. Karen Pashby, prófessor við Manchester Metropolitan University, sem fjallar um tækifæri og áskoranir menntunar til hnattrænnar borgaravitundar.
- Pétur Hjörvar Þorkelsson, verkefnastjóri hjá Félagi Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, sem ræðir hlutverk frjálsra félagasamtaka í þátttöku og virkni ungs fólks.
- Eva Harðardóttir, lektor við Háskóla Íslands og aðalrannsakandi MIRA, sem kynnir verkefnið og markmið þess.
Málþingið fer fram í Auðarsal í Veröld, húsi Vigdísar, frá kl. 9:30 til 11:00, en boðið verður upp á morgunkaffi frá kl. 9:00.
Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á borgaravitund.hi.is.
Að málþinginu loknu gefst kennurum kostur á að taka þátt í vinnustofum sem fram fara eftir hádegi í Sögu. Þar leiða Dr. Karen Pashby og Dr. Joanne O’Flaherty (University of Limerick) vinnu um kennslufræðilegar nálganir sem styðja gagnrýna hugsun og umræðu um hnattræn málefni, svo sem mannréttindi, lýðræði, sjálfbærni, frið og réttlæti.
Skráningarfrestur er til og með 5. október – Skráðu þig hér
Athugið að þátttakendur utan höfuðborgarsvæðisins geta sótt um ferðastyrk.
Fyrirspurnir berist til:
- Pétur Hjörvar Þorkelsson, UNESCO-skólar á Íslandi: petur@un.is
- Eva Harðardóttir, aðalrannsakandi MIRA: evahar@hi.is