Langar þig að hafa jákvæð áhrif, læra meira um alþjóðleg málefni og kynnast öðru ungu fólki sem deilir sömu áhugamálum? Þá gæti þátttaka í Model UN haustráðstefnu Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi verið eitthvað fyrir þig.
Við leitum nú að áhugasömu og drífandi ungu fólki á aldrinum 16-20 ára til að taka þátt í stýri og -skipulagshópum ráðstefnunnar.
Model United Nations, eða Model UN, er vettvangur þar sem ungt fólk fær tækifæri til að setja sig í hlutverk fulltrúa ríkja hjá Sameinuðu þjóðunum, ræða alþjóðleg málefni, takast á við sameiginlegar áskoranir og leita lausna í gegnum samvinnu og samningaviðræður.
Með því að taka þátt í undirbúningi ráðstefnunnar færð þú tækifæri til að:
- hafa jákvæð áhrif og leggja þitt af mörkum til verkefnis sem hvetur ungt fólk til þátttöku í alþjóðamálum,
- læra meira um alþjóðleg málefni og starf Sameinuðu þjóðanna,
- kynnast öðru ungu fólki sem hefur svipuð áhugamál og byggja upp ný tengsl,
- öðlast hagnýta reynslu af verkefnastjórnun, viðburðahaldi og teymisvinnu,
- þróa færni í samskiptum, skipulagi og samstarfi,
- og taka þátt í að móta skemmtilegan og metnaðarfullan viðburð frá grunni.
Það eru fjölbreytt verkefni í boði og hægt er að taka þátt eftir áhuga og styrkleikum. Skipulagshóparnir koma meðal annars að dagskrá og málefnavinnu, framkvæmd ráðstefnunnar, kynningar- og samfélagsmiðlamálum og samskiptum við þátttakendur og samstarfsaðila.
Þú þarft ekki að hafa tekið þátt í Model UN áður. Það sem skiptir mestu máli er áhugi, forvitni og vilji til að leggja sitt af mörkum.
Langar þig að vera með?
Umsóknarfrestur til 10. september.
Skráning: Þátttaka í skipulagningu á haustráðstefnu Model UN.
Vertu með í að skapa Model UN haustráðstefnuna og taktu þátt í samfélagi ungs fólks sem vill læra, tengjast og hafa áhrif.