Vala Karen Viðarsdóttir var kjörin varaforseti Alheimssamtaka félaga Sameinuðu þjóðanna (WFUNA) á 44. heimsþingi og ráðstefnu sambandsins sem fram fór í Genf dagana 26.–28. ágúst. Kjör hennar er mikilvæg fyrir þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi félaga Sameinuðu þjóðanna.
Fulltrúar 41 landsfélaga Sameinuðu þjóðanna víðs vegar að úr heiminum sóttu þingið og ráðstefnuna, sem haldið var í höfuðstöðvum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) í Genf og er haldið á þriggja ára fresti. Yfirskrift þingsins var Reclaiming Multilateralism og beindust umræður að því hvernig megi endurheimta alþjóðlegt samstarf, hlutverk borgarasamfélagsins og mikilvægi þess að efla stuðning við Sameinuðu þjóðirnar á tímum vaxandi alþjóðlegra áskorana.
Á þinginu fór fram kjör nýrrar forystu WFUNA. Katalin Bogyay frá Ungverjalandi var kjörin forseti sambandsins og Vala Karen Viðarsdóttir frá Íslandi ein fjögurra varaforseta. Aðrir varaforsetar eru Farah Salim Eck frá Bandaríkjunum, Ibrahim Bakari Mwenda frá Tansaníu og Moohi Shaheen frá Pakistan.
Kjör Völu Karenar styrkir enn frekar rödd Íslands innan alþjóðlegs samstarfs félaga Sameinuðu þjóðanna. Varaforsetar WFUNA taka þátt í stefnumótun sambandsins og starfa með öðrum kjörnum fulltrúum að því að efla alþjóðlegt samstarf, stuðning við Sameinuðu þjóðirnar og þátttöku borgarasamfélagsins í starfi þeirra.

Fjallað um framtíð fjölþjóðlegs samstarfs
Alheimssamtök félaga Sameinuðu þjóðanna hafa verið til nánast jafn lengi og Sameinuðu þjóðirnar sjálfar. Viðamikil dagskrá lá fyrir á ráðstefnunni og heimsþinginu, þar sem meðal annars var fjallað um skýrslu framkvæmdastjóra WFUNA, fjármál sambandsins og fjárhagsáætlun fyrir næstu ár og stefnu WFUNA fyrir tímabilið 2026–2029.
Sérstök áhersla var lögð á þær áskoranir sem fjölþjóðlegt samstarf stendur frammi fyrir. Meðal gagna sem rædd voru á þinginu voru Genfaryfirlýsing, umfjöllun um árásir á fjölþjóðahyggju og alþjóðlegt samstarf, fjármögnun WFUNA og fimmtán ályktanir um málefni sem varða starf Sameinuðu þjóðanna og aðildarfélaganna sem lagðar voru fram fyrir fundinn af landsfélögum.
Þingið var þannig bæði vettvangur fyrir innra starf WFUNA og samtal um hvernig félög Sameinuðu þjóðanna geta brugðist við breyttu alþjóðlegu umhverfi og lagt sitt af mörkum til að verja og styrkja það alþjóðlega samstarf sem Sameinuðu þjóðirnar byggja á.

WFUNA fagnar 80 ára afmæli
Þingið fór fram á tímamótaári fyrir WFUNA, sem fagnar 80 ára starfsafmæli árið 2026. Af því tilefni fór fram sérstök athöfn í Parc Rigot í Genf þann 27. ágúst þar sem átta áratuga starf sambandsins í þágu Sameinuðu þjóðanna og alþjóðlegs samstarfs var fagnað.
Þingið og ráðstefnan var því mikilvægur umræðuvettvangur og styrkti tengsl Félags SÞ á Íslandi enn frekar við önnur landsfélög UNA. Þess ber að geta að Vala Karen og sendinefndin átti jafnframt verðugan fund með fastanefnd Íslands í Genf sem var í óðaönn að undirbúa fyrstu haustlotu samningaviðræðna í mannréttindaráði SÞ en sú lota hefst vikuna 7. september.
WFUNA, World Federation of United Nations Associations, eru alþjóðleg samtök félaga Sameinuðu þjóðanna. Samtökin vinna að því að efla Sameinuðu þjóðirnar, auka þekkingu almennings á starfi þeirra og skapa vettvang fyrir þátttöku borgarasamfélagsins í alþjóðlegu samstarfi. Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi er aðili að WFUNA.
