Verður heimurinn betri? UNESCO-skólar og heimsmarkmiðin er námskeið fyrir kennara og stjórnendur í leik-, grunn- og frammhaldsskólum.
Námskeiðið er opið öllum kennurum og stjórnendum og engin krafa er um að hafa unnið með verkefni og gildi UNESCO-skóla.
Á námskeiðinu verður sjónum beint að því hvernig við getum unnið með heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og gildi UNESCO. Hvernig getum við hjálpað nemendum að skilja þær stóru áskoranir sem heimurinn stendur frammi fyrir – án þess að missa sjónar á þeim framförum sem hafa átt sér stað og möguleikum ungs fólks til að hafa áhrif?
Unnið verður með námsefni, hugmyndir og fjölbreyttar kennsluaðferðir sem styðja við hnattræna borgaravitund, sjálfbæra þróun, mannréttindi og frið. Sérstök áhersla verður lögð á að tengja heimsmarkmiðin við daglegt skólastarf og á kennsluaðferðir sem byggja á virkri þátttöku, samtali og gagnrýninni hugsun nemenda.
Námskeiðið er hluti af fræðslustarfi Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og er í stöðugri þróun með hliðsjón af reynslu og endurgjöf þátttakenda.
Tími og staðsetning: Stóru-Vogaskóli. 28. September. 13.00-16.00.
Allir þátttakendur fá viðurkenningarskjal og heimsmarkmiðanælu.
Námskeiðsgjald: 8.000 kr. Námskeiðið er styrkhæft hjá stéttarfélögum.
Skráðu þig hér → UNESCO-skóla námskeið 28. september – Fill in form
Þú færð staðfestingarpóst með greiðsluupplýsingum. Greiðsla staðfestir skráningu.
Pétur Hjörvar, verkefnastjóri hjá Félagi Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, tekur glaður við fyrirspurnum á netfanginu petur@un.is eða í síma 846-5476.