Íslendingum býðst nú í fyrsta sinn í meira en tvo áratugi tækifæri til að taka þátt í Young Professionals Programme (YPP), sérstöku próf- og ráðningarferli Sameinuðu þjóðanna fyrir ungt fagfólk sem vill hefja starfsferil hjá aðalskrifstofu SÞ.
YPP er ætlað að fjölga starfsfólki frá aðildarríkjum sem hafa ekki eða hafa of fáa fulltrúa meðal alþjóðlegs starfsliðs Sameinuðu þjóðanna. Þátttökulönd eru því ekki þau sömu á hverju ári heldur ræðst listinn af stöðu ríkja innan starfsmannahóps SÞ hverju sinni. Ísland er meðal þátttökulanda árið 2026 og geta íslenskir ríkisborgarar því sótt um YPP í ár.
Þetta er sérstakt tækifæri fyrir ungt fagfólk á Íslandi. Ísland hefur ekki verið meðal þátttökulanda YPP um langt árabil, en síðast þegar Íslendingum bauðst að taka þátt í sambærilegu ferli komust nokkrir íslenskir umsækjendur áfram og hófu störf hjá Sameinuðu þjóðunum.
Hver geta sótt um?
Til að uppfylla grunnskilyrði YPP 2026 þurfa umsækjendur að:
- vera með íslenskan ríkisborgararétt
- vera fæddir 1. janúar 1994 eða síðar
- hafa BA/BSc-gráðu eða sambærilegt, að minnsta kosti þriggja ára háskólanám sem tengist prófsviðinu
- hafa góð tök á ensku eða frönsku.
Prófsviðið árið 2026 er Development and Sustainability. Þar koma meðal annars til greina umsækjendur með bakgrunn á sviði hagfræði, tölfræði, félagsvísinda, umhverfismála, þróunarfræða og sjálfbærrar þróunar.
Hvernig fer YPP fram?
Umsækjendur fara í gegnum fjölþætt valferli sem felur í sér mat á umsóknum, rafræn próf og viðtal. Þeir sem standast ferlið geta komist á lista yfir hæfa umsækjendur (roster) og komið til greina í störf hjá Sameinuðu þjóðunum eftir því sem störf losna og þörf er á viðkomandi sérþekkingu.
YPP er því leið sem gæti opnað dyr að starfsferli hjá Sameinuðu þjóðunum og er ólíkt tímabundnum starfsnáms- eða JPO-verkefnum. Ferlið er alfarið á vegum Sameinuðu þjóðanna og ráðningar fara eftir þörfum stofnunarinnar hverju sinni.
Gert er ráð fyrir að umsóknir vegna YPP 2026 opni í október og að umsóknarfrestur verði í nóvember.
Nánari upplýsingar um YPP, má finna hér.
Nánari upplýsingar um næstu kynningarfundi SÞ um YPP, má finna í þessu skráningarformi en næstu dagsetningar eru 8. október, 13. október og 15. október.
Young Professionals Programme er alfarið á vegum Sameinuðu þjóðanna. Íslensk stjórnvöld og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi koma ekki að mati umsókna, prófferli eða ráðningum.