Model UN á alþjóðadögum HÍ – Taktu þátt!

Félag Sameinuðu þjóðanna á Alþjóðadögum HÍ

Þann 5. nóvember n.k. milli 14.00 og 15.00 bjóðum við áhugasömum háskólanemendum að taka þátt í örútgáfu af hermilíkani Sameinuðu þjóðanna – mini-MUN.

Skrá sig hér: Skráning í mini-Model UN á alþjóðadögum HÍ – Fill in form

Viðburðurinn býður upp á einstakt tækifæri til að kynnast starfi Sameinuðu þjóðanna, öðlast innsýn í alþjóðlega ákvarðanatöku og takast á við eina af brýnustu öryggisáskorunum samtímans.

Viðfangsefni fundarins er Fæðuöryggi í Súdan í skugga loftslagsbreytinga. Súdan stendur frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem vopnuð átök, fólksflótti, fæðuskortur og áhrif loftslagsbreytinga hafa skapað gríðarlegar áskoranir fyrir íbúa landsins. Þurrkar, flóð og ófyrirsjáanleg veðurskilyrði hafa áhrif á landbúnað og aðgengi að matvælum, á sama tíma og átök torvelda matvælaframleiðslu, dreifingu hjálpargagna og aðgengi fólks að nauðsynlegum björgum.

Viðburðurinn byggir á aðferðafræði Model UN (Hermilíkani Sameinuðu þjóðanna), þar sem þátttakendur setja sig í spor fulltrúa aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna og taka þátt í umræðum og samningaviðræðum um hvernig alþjóðasamfélagið geti brugðist við stöðunni í Súdan. Þátttakendur færa rök fyrir afstöðu sinni og vinna saman að tillögum sem stuðla að auknu fæðuöryggi, mannúðaraðstoð og sjálfbærum lausnum. Markmið viðburðarins er að skapa tækifæri fyrir háskólanema til að þjálfa sig í að takast á við raunverulegar alþjóðlegar áskoranir, skiptast á hugmyndum og öðlast reynslu af því hvernig alþjóðasamfélagið vinnur að sameiginlegum lausnum. 

Þátttaka í þessari örútgáfu tryggir þátttakendum forgang að lengri Model UN ráðstefnu í vor.