Um 25 kennarar úr UNESCO-skólum á Reykjanesi tóku nýverið þátt í námskeiði á vegum Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi í Á námskeiðinu var lögð áhersla á hnattræna borgaravitund, verkefnið Verður heimurinn betri og mannréttindi við daglegt skólastarf.
Námskeiðið byggði á virkri þátttöku og samtali og gaf kennurum jafnframt tækifæri til að skiptast á hugmyndum og reynslu um hvernig efla megi hnattræna borgaravitund í skólastarfi.
Fjallað var um Sameinuðu þjóðirnar, UNESCO og hlutverk UNESCO-skóla, auk þess sem kennarar ræddu mikilvægi og vænlegar leiðir við að fræða ungmenni um heimsmarkmiðin, mannréttindi, sjálfbæra þróun og samfélagslega þátttöku. Sérstök áhersla var lögð á heimsmarkmið 4.7 um menntun til sjálfbærrar þróunar og hnattrænnar borgaravitundar.
Á námskeiðinu unnu þátttakendur með kennsluvefinn Verður heimurinn betri?, sem Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu hafa unnið að íslenskri útgáfu á. Vefurinn er gagnvirkt kennsluverkfæri þar sem ungt fólk getur kynnt sér þróun heimsins og heimsmarkmiðin með meðal annars staðreyndaspjöldum og myndböndum. Efnið er ætlað að vekja til umræðu, efla gagnrýna hugsun og hvetja ungt fólk til aðgerða.
Í verkefnavinnu námskeiðsins unnu kennarar saman að hugmyndum um hvernig nýta megi vefinn í daglegu skólastarfi og þróa verkefni fyrir nemendur út frá efni hans. Þar var meðal annars horft til þess hvernig tengja mætti viðfangsefni vefsins við ólíkar námsgreinar, skapa umræður um hnattrænar áskoranir og tengja það sem gerist í nærumhverfi nemenda við stærra alþjóðlegt samhengi. Vefurinn fjallar meðal annars um menntun, heilsu, jafnrétti, mannréttindi, loftslagsmál, frið og fátækt.