Nýtt rannsóknar- og þróunarverkefni, MIRA, var kynnt á málþingi í Háskóla Íslands þann 15. október. Verkefnið beinist að því hvernig efla megi menntun til hnattrænnar borgaravitundar í íslenskum framhaldsskólum, með áherslu á mannréttindi, sjálfbærni, frið og lýðræðislega þátttöku.
MIRA hlaut nýverið styrk úr Menntarannsóknarsjóði mennta- og barnamálaráðuneytisins og er unnið í samstarfi við UNESCO-framhaldsskóla á Íslandi. Meginmarkmið verkefnisins er að rannsaka hvernig hnattræn borgaravitund birtist í stefnu og daglegu starfi skólanna og hvernig styðja megi kennara og nemendur við að takast á við flókin samfélagsleg og alþjóðleg málefni. Níu UNESCO-framhaldsskólar hafa þegar staðfest þátttöku í verkefninu.
Á málþinginu var fjallað um hlutverk menntunar á tímum vaxandi ójöfnuðar, loftslagsbreytinga og áskorana í lýðræðis- og mannréttindamálum. Sérstök áhersla var lögð á hvernig skólar geta skapað vettvang fyrir gagnrýna hugsun, samtal og virka þátttöku ungs fólks í samfélaginu. Málþingið var vel sótt af þátttakendum; stjórnendum og kennurum UNESCO framhaldsskóla á Íslandi, fagfólki, stefnumótendum og öðrum áhugasömum.
Samstarf kennara, nemenda og rannsakenda
Eva Harðardóttir, lektor við Menntavísindasvið HÍ og formaður Félags SÞ á Íslandi er aðalrannsakandi MIRA og kynnti verkefnið og rannsóknaráherslur þess.
Rannsóknin byggir á þremur meginsviðum. Annars vegar verður skoðað hvernig hnattræn borgaravitund birtist í stefnu og stjórnun UNESCO-skóla. Hins vegar verður unnið með kennurum að þróun kennsluhátta sem styðja gagnrýna hugsun og umræðu um hnattræn málefni. Þriðji þátturinn snýr að sjónarmiðum ungmenna sjálfra, hvernig þau upplifa áskoranir samtímans og hvaða möguleika þau telja sig hafa til að hafa áhrif á samfélagið.
Kennarar UNESCO – þátttökuskóla munu taka þátt í þremur vinnustofum á tveggja ára tímabili. Markmiðið er meðal annars að þróa kennslufræðilegan ramma sem tekur mið af íslenskum veruleika og nýtist kennurum bæði í grunn- og framhaldsskólum.
Verkefnið tengist jafnframt alþjóðlegu rannsóknarsamstarfi við Japan, England og Írland.

Hlutverk skóla og félagasamtaka í að efla samfélagsþátttöku
Á málþinginu flutti einnig dr. Karen Pashby, prófessor við Manchester Metropolitan University, erindi um tækifæri og áskoranir menntunar til hnattrænnar borgaravitundar. Að loknum erindum fóru fram pallborðsumræður sem Pétur Hjörvar Þorkelsson, verkefnastjóri hjá Félagi Sameinuðu þjóðanna á Íslandi stýrði. Þátttakendur í pallborði voru þau Guðrún Birna Guðmundsdóttir, doktorsnemi við Menntavísindasvið, Guðjón Hreinn Hauksson, formaður félags framhaldsskólakennara og Emil Arthúr Júlíusson, forseti Sambands íslenskra framhaldsskólanema. Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands ávarpaði gesti í lokin og sleit þinginu.
Að málþinginu loknu var kennurum boðið að taka þátt í vinnustofum undir leiðsögn dr. Karen Pashby og Evu Harðardóttur. Þar hélt Kristín Loftsdóttir, mannfræðingur kveikjuerindi og fjallaði um mótun sjálfmyndar þjóðar, sérstöðuhyggju, hvítleikahugmyndir og fleiri mikilvæg en oft vandmeðfarin hugtök á vettvangi menntunar til hnattrænnar borgaravitundar. Á vinnustofunni var sjónum beint að kennslufræðilegum nálgunum sem styðja samtal og gagnrýna umfjöllun um mannréttindi, lýðræði, sjálfbærni, frið og réttlæti. Karen Pashby vann með kennurum að því að skoða og skilja EGIP kennsluhandbók sem hún þróaði í samvinnu við enska, sænska og finnska framhaldsskólakennara og hefur nú verið gefin út á fjórtán tungumálum þ.á.m. íslensku og er handbókin aðgengileg hér:
Menntun til sjálfbærrar þróunar með siðferðilegri og hnattrænni kennslufræði
UNESCO-skólar mikilvægur vettvangur þróunar
MIRA tengist áherslum UNESCO um menntun til friðar, mannréttinda og sjálfbærrar þróunar. Í nýrri framkvæmdaáætlun UNESCO-skólanetsins fyrir árin 2025–2029 er lögð áhersla á að þessi gildi endurspeglist í öllu skólastarfi, allt frá stefnumótun og stjórnun til kennsluhátta, námsumhverfis og þátttöku nemenda.
Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi hefur umsjón með UNESCO-skólanetinu hér á landi og vinnur að því að efla samstarf skólanna og styðja við fræðslu um heimsmarkmiðin, mannréttindi og hnattræna borgaravitund.
MIRA er mikilvægt framlag til þeirrar vinnu. Með samstarfi rannsakenda, kennara og nemenda skapast tækifæri til að þróa nýjar leiðir til að fjalla um hnattrænar áskoranir í skólastarfi og styrkja getu ungs fólks til að taka virkan þátt í að móta framtíðina.
Hér fyrir neðan er upptaka af erindi Evu Harðardóttur um MIRA, rannsóknina og mikilvægi menntunar um hnattrænnar borgaravitundar.
Hér má nálgast upptöku af erindi Evu
Nánari upplýsingar um MIRA má finna á borgaravitund.hi.is