Volker Türk ræddi stöðu mannréttinda við íslensk félagasamtök

Volker Türk, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, átti fund með fulltrúum íslenskra félagasamtaka í Mannréttindahúsinu í Reykjavík mánudaginn 12. október.

Fundurinn var haldinn á vegum Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og var þar rætt um helstu áskoranir í mannréttindamálum, bæði hér á landi og á alþjóðavettvangi. Türk, sem er staddur hér á landi vegna friðarráðstefnunnar Imagine Forum í Hörpu, hafði óskaði eftir fundi með fulltrúum íslensks borgarasamfélags. Markmið fundarins var að skapa vettvang fyrir opið samtal og gefa félagasamtökunum tækifæri til að koma áherslum sínum og áhyggjuefnum á framfæri.

Jafnrétti og aukin ógn við mannréttindi

Rætt var um vaxandi andóf gegn kynjajafnrétti og réttindum hinsegin fólks, hatursorðræðu, mismunun og réttindi intersex fólks. Einnig var rætt um stöðu kvenna og stúlkna á átakasvæðum og mikilvægi þátttöku kvenna í friðaruppbyggingu.

Türk setti þessa þróun í alþjóðlegt samhengi og lagði áherslu á mikilvægi þess að standa vörð um mannréttindi allra. Hann varaði sérstaklega við þeirri orðræðu að mannréttindi væru fyrst og fremst málefni tiltekinna hópa og minnti á að þau nái einnig til grundvallarréttinda á borð við mannsæmandi lífskjör og félagslegt öryggi. Hann hvatti jafnframt til aukinnar mannréttindafræðslu og samtals til að vinna gegn fordómum og sundrungu. Í því samhengi nefndi hann alþjóðlega samstarfið Global Alliance og 80 ára afmæli Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna árið 2028 sem tækifæri til að efla vitund um mannréttindi.

Réttindi flóttafólks, innflytjenda og barna

Fulltrúar félagasamtakanna lýstu áhyggjum af stöðu umsækjenda um alþjóðlega vernd á Íslandi, meðal annars varðandi aðgengi að lögfræðiaðstoð, túlkaþjónustu og grunnþjónustu. Réttindi barna voru sérstaklega til umræðu, meðal annars í tengslum við brottvísanir, vistun á grundvelli útlendingalaga og aðgengi að menntun og heilbrigðisþjónustu.

Türk sýndi sérstakan áhuga á nýlegri löggjöf um brottvísunarstöð á Íslandi og óskaði eftir nánari upplýsingum um hana, meðal annars um samráð við borgarasamfélagið og Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR).

Sterkt borgarasamfélag og lýðræðisleg þátttaka

Fjallað var um mikilvægi sjálfstæðra mannréttindastofnana og öflugs borgarasamfélags. Fulltrúar félagasamtakanna lýstu áhyggjum af fjármögnun Mannréttindastofnunar Íslands og félagasamtaka sem starfa að mannréttindamálum. Sérstaklega var bent á að dregið hefði verið úr fjárveitingum til forvarna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi gegn börnum.

Einnig var rætt um tengsl mannréttinda, loftslagsmála og náttúruverndar, þátttöku almennings í ákvarðanatöku og mikilvægi þess að börn og ungmenni hafi raunveruleg tækifæri til að hafa áhrif á samfélagið. Þá kom fram að félagasamtök teldu mikilvægt að stjórnvöld hlustuðu á gagnrýnar umsagnir og ólík sjónarmið í opinberu samráði.

 

Geðheilbrigði, réttindi fatlaðs fólks og sjálfsákvörðunarréttur

Rætt var um réttindi fatlaðs fólks, sjálfsákvörðunarrétt og aðgengi að þjónustu. Sérstök áhersla var lögð á þörf fyrir aukið gagnsæi og eftirlit með beitingu þvingunar í geðheilbrigðisþjónustu, auk þess sem rætt var um líkamlega friðhelgi intersex barna.

Türk óskaði eftir upplýsingum um stöðu innleiðingar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem Ísland fullgilti árið 2016 og lögfesti í nóvember 2025. Rætt var um þær áskoranir sem enn væru til staðar við að tryggja framkvæmd samningsins og mikilvægi þess að stjórnvöld sýndu frumkvæði í þeirri vinnu.

Mikilvægt samtal um stöðu mannréttinda

Í lok fundarins sagðist Türk ætla að vekja athygli á áhyggjum félagasamtakanna af fjármögnun mannréttindastarfs. Hann ræddi jafnframt hvernig nýta mætti reglubundna allsherjarúttekt Sameinuðu þjóðanna á stöðu mannréttinda (UPR) til að fylgja málum eftir og stuðla að úrbótum.

Fundurinn skapaði einstakt tækifæri fyrir íslenskt borgarasamfélag til beins samtals við mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna um stöðu mannréttinda á Íslandi og leiðir til að fylgja þeim málum eftir, bæði innanlands og í gegnum mannréttindakerfi SÞ.

Eftirfarandi samtök tóku þátt:

Barnaheill
Geðhjálp
Landssamband ungmennafélaga
Landvernd
Rauði krossinn á Íslandi
Samtökin 78
Trans Ísland
UNICEF á Íslandi
UN Women á Íslandi
W.O.M.E.N in Iceland
ÖBÍ réttindasamtök, ásamt ungmennafulltrúa Íslands hjá SÞ.