Framtíðin á forsendum ungs fólks – Kynning á skýrslu Mannfjöldasjóðs SÞ í Grósku 24. nóvember

Hvernig stuðning þarf ungt fólk til að takast á við áskoranir samtímans?

Ungt fólk í dag er betur menntað, betur tengt og meðvitaðra um réttindi sín en nokkrar fyrri kynslóðir. Samt stígur það inn í fullorðinsárin á tímum mikillar óvissu. Efnahagslegt óöryggi, örar tæknibreytingar, loftslagsvá og átök í heiminum hafa áhrif á tækifæri þess, ákvarðanir og framtíðarsýn.

Þrátt fyrir að ungt fólk muni bera afleiðingar margra þeirra ákvarðana sem teknar eru í dag hefur það oft takmörkuð áhrif á ákvarðanir sem varða eigið líf og framtíð.

En hvernig breytum við því? Hvernig tryggjum við réttindi ungs fólks, aukið sjálfræði og raunveruleg tækifæri til að móta eigin framtíð?

Í tilefni af útgáfu nýrrar skýrslu Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA), State of World Population 2026, bjóðum við til samtals um stöðu ungs fólks og réttindi þess. Skýrslan varpar ljósi á raunverulegar aðstæður ungs fólks um allan heim, baráttu þess fyrir réttindum sínum og vonir og væntingar til framtíðarinnar.

Í skýrslunni eru leiðtogar heimsins hvattir til að tryggja ungu fólki raunveruleg áhrif á ákvarðanir sem varða líf þess og framtíð. Áhersla er jafnframt lögð á að hverfa frá því að móta lausnir fyrir ungt fólk og skapa þess í stað framtíðina í samstarfi við það og undir forystu þess.

Á viðburðinum koma saman ungt fólk, frumkvöðlar, fulltrúar atvinnulífs, stjórnvöld og Sameinuðu þjóðirnar til að ræða hvernig skapa megi aðstæður þar sem ungt fólk hefur raunverulegt val, áhrif og tækifæri til að blómstra.

Það er ekki nóg að hlusta á ungt fólk – það þarf að fá raunverulegt sæti við borðið og tækifæri til að leiða breytingar.

📍 Staðsetning: Gróska, Parketið

🕐 Dagskrá: 13:00–14:30

🥗 Léttur hádegisverður: 12:30–13:00

Skráning fer fram hér.

Viðburðurinn er haldinn í samstarfi Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA), Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, Utanríkisráðuneytisins og KLAK – Icelandic Startups.

Verið öll hjartanlega velkomin!