Ungt fólk á að hafa raunveruleg áhrif á eigin framtíð

Hvernig getur ungt fólk mótað eigin framtíð á tímum efnahagslegs óöryggis, hraðra samfélagsbreytinga og breyttra væntinga? Þessi spurning var í brennidepli á kynningarfundi um nýja skýrslu Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA), State of World Population 2026, sem haldinn var í Grósku þriðjudaginn 24. nóvember.

Hin nýútkomna skýrsla  sem ber heitið, Succeeding Generations. Empowering young people to chart the future, fjallar um stöðu ungs fólks í heiminum, framtíðarsýn þess og þær hindranir sem geta staðið í vegi fyrir því að það geti tekið sjálfstæðar ákvarðanir um eigið líf. Meðal annars er þar fjallað um nám, atvinnu, fjárhagslegt öryggi, sambönd og fjölskyldulíf, auk áhrifa kynjaviðmiða og samfélagslegra væntinga á tækifæri ungs fólks. Á kynningarfundinum var efni skýrslunnar tengt við íslenskan veruleika með tveimur pallborðsumræðum þar sem ungt fólk, frumkvöðlar og sérfræðingar ræddu hvað þyrfti að breytast svo ungt fólk hafi meira svigrúm til að velja sína eigin leið í lífinu. Klaus Simoni Pedersen frá aðalskrifstofu Mannfjöldasjóðs í New York kynnti efnistök skýrslunnar í upphafi auk þess sem Hildigunnur Engilbertsdóttir, varaskrifstofustjóri Þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins fjallaði um stuðning Íslands við kyn- og frjósemisheilbrigðisréttindi ungs fólks í þróunarsamvinnu.

Hvað felst í farsælu lífi í dag?

Í fyrra pallborðinu var spjótum beint að breyttum hugmyndum um árangur og þær áskoranir sem ungt fólk mæti þegar það stígur sín fyrstu skref á vinnumarkaði, byggir upp fjárhagslegt sjálfstæði og tekur ákvarðanir um framtíðina.

Þátttakendur í fyrra pallborði voru Hlynur Rafn Guðmundsson, markaðsstjóri og einn stofnenda Humble, Álfrún Perla Baldursdóttir, alþjóðafulltrúi og verkefnastjóri hjá KLAK, og Embla Líf Hallsdóttir, formaður Ungra athafnakvenna (UAK) og verkefnastjóri hjá UNIO. Þau ræddu m.a. um þau tækifæri sem standa ungu fólki til boða, vörpuðu ljósi á hvaða leiðir þau hafi farið er þau voru hefja sinn starfsferil á vinnumarkaði samhliða því að stofna fjölskyldur og koma undir sig heimili, hvað þurfi til að koma hugmyndum í framkvæmd og hvernig fjárhagslegt óöryggi, og samfélagslegur þrýstingur hafi áhrif á möguleika þess til að móta eigið líf og framtíð.

Réttur ungs fólks til að móta eigin framtíð

Í seinna pallborðinu, Young People’s Right to Shape Their Future, var sjónum beint að réttindum ungs fólks, sjálfsákvörðunarrétti og þátttöku þess í ákvarðanatöku. Þátttakendur voru Þórður Kristinsson, doktorsnemi við Háskóla Íslands og framhladsskólakennari, Mette Strandlod, sérfræðingur hjá norrænni skrifstofu UNFPA, og Lilja Hrönn Önnudóttir Hrannarsdóttir, varaformaður Landssambands ungmennafélaga (LUF). Heiðrún Vala Hilmarsdóttir, ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði kynjajafnréttis, stýrði umræðunum. Þátttakendur í pallborði veittu sína innsýn og ræddu um áhrif samfélagsmiðla og kynjaviðmiða á viðhorf ungs fólks, mikilvægi kyn- og frjósemisréttinda og hvernig tryggja megi að ungt fólk hafi raunveruleg áhrif á ákvarðanir sem varða líf þess og framtíð.

Frá þátttöku til raunverulegra áhrifa

Rauði þráðurinn í skýrslunni er að ungt fólk skorti hvorki hugmyndir né metnað til að móta eigin framtíð. Hins vegar geta fjárhagslegar, samfélagslegar og pólitískar hindranir takmarkað möguleika þess til að láta framtíðaráform sín verða að veruleika. Á kynningarfundinum var því ekki aðeins spurt hvað ungt fólk vilji fá út úr lífinu, heldur einnig hvað samfélagið þurfi að gera til að tryggja því raunverulegt valfrelsi, tækifæri og áhrif. Hér er hlekkur á skýrsluna

Viðburðurinn var vel sóttur og var haldinn í samstarfi Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA), Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, utanríkisráðuneytisins og KLAK – Icelandic Startup.