-
UNFF18 fer fram í New York dagana 8.-12. maí
Dagana 8. til 12. maí fer UNFF18 (UN Forum on Forest) fram í New York í átjánda skipti. UNFF er stefnumarkandi fundur háttsettra fulltrúa samstarfsríkja og er tilgangurinn að innleiða samninga er tengjast skógum, efla sameiginlegan skilning á sjálfbærri nýtingu skóga, hafa eftirlit með pólitískum skuldbindingum og fylgja þeim eftir. Á fundinum verður sérstaklega farið yfir […]
-
Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi fagnar 75 árum í dag, 8. maí 2023
Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi fagnar 75 árum í dag! Í 75 ár hefur félagið vakið athygli á starfsemi Sameinuðu þjóðanna um allan heim. Ótal manns gefið vinnuframlag sitt með sjálfboðavinnu en einnig hafa ótal starfsnemar og starfsfólk í gegnum tíðina unnið heilshugar í þágu málefna Sameinuðu þjóðanna. Verkefnin hafa verið margskonar og […]
-
Þriðjungur allra barnahjónabanda í heiminum á sér stað á Indlandi
Samkvæmt nýrri skýrslu UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna er áætlað er að um 640 milljónir stúlkna og kvenna sem eru á lífi í dag hafi gifst barnungar. Næstum því helmingur allra barnahjónabanda, eða um 45 prósent, á sér stað í Suður-Asíu, 20 prósent í Afríku sunnan Sahara, 15 prósent í Austur-Asíu og Kyrrahafssvæðinu, en þar á […]
-
Skelfileg átök í Súdan valda miklum fólksflótta innan- og utanlands
Átökin í Súdan eru á milli súdanska hersins og RSF-uppreisnarhersins og snúast átökin í grófum dráttum um að ná mikilvægum innviðum á sitt vald. RFS-herinn samanstendur af vígasveitum sem mynduðust í stríði sem braust út í Darfur árið 2003, og hefur herinn oft gerst uppvís um ýmis mannréttindabrot. Síðastliðinn laugardag vöknuðu íbúar Khartoum við sprengjur […]
-
Rammasamningur við Utanríkisráðuneytið undirritaður þann 13. apríl.
Nýr rammasamningur utanríkisráðuneytisins við Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi var undirritaður þann 13. apríl síðastliðinn af Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og Völu Karen Viðarsdóttir, framkvæmdastjóra félagsins. Um er að ræða samning sem gerður er til þriggja ára, á tímabilinu 2023-2025. Á sama tíma og Félag SÞ skrifaði undir sinn samning voru rammasamningar undirritaðir við […]
-
Könnun fyrir ungmenni um innleiðingu heimsmarkmiða SÞ á Íslandi
Rebekka Karlsdóttir, ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði sjálfbærrar þróunar mun sækja ráðherrafund Sameinuðu þjóðanna (e. United Nations High-Level Political Forum (HLPF) New York í júlí 2023 fyrir hönd ungmenna á Íslandi. Um ráðherrafund Sameinuðu þjóðanna (HLPF) Fundurinn fer fram árlega, en á nokkurra ára fresti kynna aðildarríki Sameinuðu þjóðanna svokallaðar landrýnisskýrslur (e. Voluntary […]
-
Ísland tvöfaldar framlag sitt til friðaruppbyggingar og sáttamiðlunar á vegum Sameinuðu þjóðanna
Íslensk stjórnvöld hafa skrifað undir fjögurra ára samstarfssamning við skrifstofu alþjóðastjórnmála og friðauppbyggingar hjá Sameinuðu þjóðunum (DPPA). Með samninnum sem gildir næstu fjögur árin, frá 2023-2026 leggur Ísland sitt af mörkum til að styðja við Sameinuðu þjóðirnar í forystuhlutverki sínu í friðaruppbyggingu og sáttamiðlun. Framlag Íslands verður tvöfalt hærra en fyrri samningur kveður á um, […]
-
„Tímamóta” aðgerðaáætlun samþykkt á Vatnsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna 2023
Vatnsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna lauk síðastliðinn föstudag, en hún stóð yfir dagana 22.-24.mars. Meira en 2.000 fulltrúar stjórnvalda, vísindamenn, fræðimenn, samfélagshópar, frumbyggjar, meðlimir einkageirans og fulltrúar ungmenna sóttu ráðstefnuna sem haldin var í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna. Á Vatnsráðstefnunni var samþykkt vatnsaðgerðaáætlun, „tímamóta“ aðgerðaáætlun sem felur í sér nærri því 700 skuldbindandi markmið sem miða að því […]
-
„Mannkynið skautar á þunnum ís, og ísinn er að bráðna ansi hratt”
Samkvæmt nýjustu skýrslu Loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna (IPCC) sem kom út 20.mars eru fjölmargar skilvirkar og framkvæmanlegar lausnir til, sem geta dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda og hjálpað okkur að aðlagast loftslagsbreytingum. „Mannkynið skautar á þunnum ís, og ísinn er að bráðna ansi hratt. Líkt og skýrslan (Loftslagsnefndar SÞ (IPCC)) greinir frá, er mannkynið ábyrgt fyrir nánast […]
-
Flóttafólk frá Suður-Súdan kallar eftir friði
Fólk á flótta innan og frá Suður-Súdan vegna langvinnra átaka, og vegna vandamála tengdum loftslagskreppunni, kalla eftir friði. Sawibu Rashidi og Jokino Othong Odok flúðu báðir heimili sín í Suður-Súdan í leit að öryggi. Það er áratugur frá því að átökin í heimalandi þeirra hófust, og að snúa aftur í örugga heimahaga er fjarstæður draumur, […]