Þann 9. febrúar síðastliðinn hélt Félag Sameinuðu þjóðanna fund með Amy Pope, aðalframkvæmdarstjóra Alþjóðlegu fólksflutningastofunarinnar (IOM). Fundinn sóttu fulltrúrar frá samtökum sem snerta á þessum málaflokki og má þar nefna UNICEF, UN Women, ASÍ, Rauða krossinn, Barnaheill og Hjálpastarf kirkjunnar.
Fundurinn var hugsaður sem vettvangur fyrir samtal við fulltrúa íslenskra félagasamtaka um stöðu fólks af erlendum uppruna á Íslandi og helstu áskoranir í málaflokknum í alþjóðlegu samhengi.
Alþjóðlega fólksflutningastofnunin er leiðandi milliríkjastofnun á sviði fólksflutningi og leikur lykilhlutverk í ráðgjöf um stefnumótun og framkvæmd í tengslum við fólksflutninga. Stofnunin vinnur að því að tryggja mannúðlega stjórnun og stýringu á fólksflutningum með það að markmiði að efla alþjóðlegt samstarf í málefnum flóttafólks.
Aðildarríki Alþjóðlegu fólksflutningastofnunarinnar eru 174 talsins auk átta ríkja sem hafa stöðu áheyrnafulltrúa. Upp á síðkastið hefur stofnunin þó átt á brattann að sækja vegna dvínandi stuðnings aðildarríkja við stofnunina og þurfti að segja upp yfir 6000 manns eftir að Bandaríkin drógu úr fjárstuðningi sínum.
