Seta Íslands í mannréttindaráði SÞ – Samráðsfundur dómsmálaráðuneytis og utanríkisráðuneytis með frjálsum félagasamtökum í Mannréttindahúsinu.

Þann 17. febrúar var haldinn samráðsfundur í Mannréttindahúsinu á milli utanríkis- og dómsmálaráðuneytis við frjáls félagasamtök vegna allsherjarúttektar Sameinuðu þjóðanna á stöðu mannréttindamála hér á landi annars vegar og fyrstu lotu ársins í mannréttindaráðinu hins vegar. Markmið samráðsins var m.a. að gefa frjálsum félagasamtökum tækifæri til að koma á framfæri ábendingum varðandi mannréttindamál hér á landi. Fundargestir tóku fulltrúa dómsmálaráðuneytisins fagnandi og lögðu fram sínar tillögur. Það var meðal annars rætt um mikilvægi réttindafræðslu og kallað eftir því að frumvarp um brottfararstöð taki mið af mannréttindarskuldbindingum og að nauðungarvistunum verði hætt, ásamt því að réttindi intersex barna í heilbrigðiskerfinu verði virt. Auk þess var kallað eftir betri hlustunarskilyrðum frá stjórnvöldum og samtali um mikilvægt framlag þriðja geirans.

Stjórnvöld skila skýrslu vegna allsherjarúttektar Sameinuðu þjóðanna á stöðu mannréttindamála hér á landi í október næstkomandi. Samhliða þeirri skýrslu geta frjáls félagasamtök skilað inn skuggaskýrslu, og var fundargestum kynnt góð ráð hvað það varðar.

Einar Gunnarsson, sendiherra Íslands í Genf gagnvart Sameinuðu þjóðunum tók svo orðið og kynnti fyrir fundargestum fyrirkomulag komandi vetrarlotu mannréttindaráðsins.