Deine Keita, framkvæmdarstjóri Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA), sótti Ísland heim í síðustu viku en heimsóknin var hluti af ferð hennar um Norðurlöndin. Félag Sameinuðu þjóðanna, í samstarfi við Utanríkisráðuneyti, bauð Deine Keita á fund með ungmennafulltrúum Íslands hjá SÞ og fulltrúum framhaldsskólanema í framkvæmdahóp Model UN, en hún hafði lýst yfir miklum áhuga á að hitta ungt fólk í heimsókn sinni til landsins.
Fundargestir og Deine Keita ræddu meðal annars hlutverk ungs fólks í alþjóðlegri ákvarðanatöku og störf Mannfjöldasjóðisns í þágu aukins kynjajafnréttis og stuðnings við konur og stúlkur allsstaðar í heiminum.
UNFPA er sú stofnun Sameinuðu þjóðanna sem vinnur að bættri kyn- og frjósemisheilbrigðisþjónustu, vernd og réttindum kvenna og stúlkna, og eflingu jafnréttis um heim allan. Stofnunin leggur sérstaka áherslu á stöðu kvenna og stúlkna í viðkvæmum aðstæðum, aðgengi að fræðslu og heilbrigðisþjónustu, og rétt ungs fólks til upplýstra ákvarðana um eigið líf og framtíð.
