Model UN ráðstefna 7. mars 2026

Í dag hélt Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi í samstarfi við nemendur úr MH, MR, Kvennó og Versló Model UN ráðstefnu fyrir framhaldsskólanema í Sögu í Háskóla Íslands. Þátttakendur settu sig í spor fulltrúa aðildarríkja í öryggisáði Sameinuðu þjóðanna og tókust á við eina stærstu áskorun samtímans: öryggi kvenna og stúlkna í Afganistan.

Þátttakendur í Model UN eru í forsvari fyrir ákveðið ríki sem situr í öryggisráðinu, halda ræður um umræðuefnið, semja við önnur ríki og leggja drög að ályktunum, kynna ályktanirnar fyrir ráðinu og að lokum greiða atkvæða um hvaða ályktun eða ályktanir verða samþykktar. 

Ráðstefnan hófst á opnunarerindi frá Katrínu Jakobsdóttur þar sem hún talaði um hvernig raunverulegur friður út og sagði frá eigin reynslu af alþjóðasamskiptum með friðaruppbyggingu og kynjajafnrétti að leiðarljósi. Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdarstjóri UNICEF á Íslandi tók einnig til máls og ræddi öryggi barna og kvenna í Afganistan auk þess sem sérstakur gestur ráðstefnunnar, Noorina Khalikyar, ávarpaði ráðið en hún er læknir frá Afganistan. Noorina tók líka í þátt í pallborðsumræðum í upphafi ráðstefnunnar ásamt Svanhildi Þorvaldsdóttur, dósent við stjórnmálafræðideild HÍ, og Þórhildi Davíðsdóttur, ungmennafulltrúa Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum.

Þátttakendur voru virkir í umræðum og samningarviðræðum og mátti fljótlega sjá hópa myndast og ræða málin víðsvegar um Sögu. Stefna og skoðanir ríkjanna sem þátttakendur eru í forsvari fyrir endurspeglast í framkomu þeirra og afstöðu til aðgerða og ályktana og mynduðust því líflegar en alvörugefnar samningaviðræður á milli fulltrúanna. Ályktanir voru svo kynntar og fulltrúar ríkjanna kusu um þær og gerðu athugasemdir og breytingar í takt við raunverulega afstöðu ríkja í öryggisráðinu.

Framtíðin er svo sannarlega björt ef marka má daginn í dag en þátttakendur stóðu sig frábærlega við að ræða þessa stóru áskorun, semja um aðgerðir og komast að niðurstöðu í anda öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.

Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi þakkar skipuleggjendum, ræðumönnum og þátttakendum kærlega fyrir daginn!