Verður heimurinn betri? hlýtur tilefningu til Íslensku vefverðlaunanna

Verður heimurinn betri? hlaut tilnefningu til Íslensku vefverðlaunanna í flokknum samfélagsvefur ársins. 

Vefurinn Verður heimurinn betri? er hugsaður sem kennsluverkfæri sem hjálpar ungu fólki að skilja heiminn sem við búum í. Á vefnum má læra ýmislegt um heiminn með aðstoð myllumerkja, staðreyndaspjalda og myndbanda sem fjalla um þróun mála í heiminum. Nemendur safna atkvæðum með því að lesa staðreyndaspjöld og horfa á myndbönd og geta svo notað atkvæðin til að kjósa og hafa áhrif á hvaða málefni verða sett í forgang í framtíðinni. 

Vefurinn hvetur nemendur til ígrundunar um ástandið í heimininum og styður við fjölbreytta og gagnrýna hugsun. Vefurinn er sérstaklega hannaður til að nýtast sem kennsluefni í einstaklingsmiðaðri vinnu innan skóla en framvinda hvers nemenda er sýnileg á síðunni. 

Verður heimurinn betri? styður við efni samnefndar bókar sem kom út á vegum Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNDP) og var þýdd yfir á íslensku af Maríu Rún Þorsteinsdóttur. Þetta er í þriðja sinn sem bókin er gefin út á íslensku en prentun og útgafa bókarinnar var styrkt af utanríkisráðuneytinu og unnin af Félagi Sameinuðu þjóðanna í samvinnu við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Vefsíðan er styrkt af mennta- og barnamálaráðuneytinu og unnin af Félagi Sameinuðu þjóðanna og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu í samstarfi við 14islands. Samnefndur vefur kom upprunalega út á sænsku og var unnin af 14islands fyrir Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna í Svíþjóð en til gamans má geta að sænski vefurinn vann sænsku vefverðlaunin.