Vefurinn Verður heimurinn betri? hlaut viðurkenningu á Íslensku vefverðlaununum sem afhent voru í lok mars, en vefurinn var tilnefndur í flokknum samfélagsvefur ársins. Vefurinn hafnaði í öðru sæti og hlaut jafnframt viðurkenningu sem upphlaupari ársins í sínum flokki.
Að hljóta tilnefningu í flokki samfélagsvefa ársins er viðurkenning út af fyrir sig en árangurinn undirstrikar jafnframt mikilvægi vefsins sem gagnvirks kennslutóls. Verður heimurinn betri? er hugsaður til að auka þekkingu og efla áhuga ungs fólks á málefnum Sameinuðu þjóðanna og ástandi heimsins.
Vefurinn er sérstaklega hannaður til notkunar í kennslu og nýtist vel í einstaklingsmiðaðri vinnu þar sem framvinda hvers nemanda er sýnileg. Hann styður jafnframt við efni bókarinnar Verður heimurinn betri?, sem gefin hefur verið út á íslensku af Félagi Sameinuðu þjóðanna í samstarfi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, með stuðningi utanríkisráðuneytisins.
Vefsíðan er styrkt af mennta- og barnamálaráðuneytinu og unnin í samstarfi Félags Sameinuðu þjóðanna, Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu og 14islands. Upprunalega var vefurinn þróaður í Svíþjóð fyrir Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna (UNDP), þar sem hann hlaut einnig viðurkenningar.
Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi þakkar öllum þeim sem komu að þróun vefsins og þeim fjölmörgu sem hafa nýtt hann í kennslu og fræðslu.