Hvað eiga bókasöfn og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna sameiginlegt?
Á hverjum degi leggja bókasöfn sitt af mörkum til sjálfbærrar þróunar, með því að miðla þekkingu, skapa rými fyrir samtal og hvetja til þátttöku. Hvort sem um er að ræða fræðslu, viðburði eða einfaldlega aðgengi að upplýsingum, þá eru bókasöfn mikilvægur hlekkur í því að byggja upplýst og virkt samfélag.
Í Viku 17 er kastljósinu beint sérstaklega að þessu hlutverki. Þá taka bókasöfn víðs vegar um landið þátt í alþjóðlegu átaki þar sem heimsmarkmiðin eru gerð sýnileg í daglegu starfi. Með fjölbreyttum og skapandi viðburðum, stórum sem smáum, sýna bókasöfn hvernig hægt er að tengja heimsmarkmiðin við líf fólks hér og nú.
Þema ársins 2026 er „Ekkert hungur“, en áherslan er jafnframt á að sýna breidd markmiðanna og hvernig þau fléttast saman.
Vika 17 er áminning um að breytingar gerast ekki bara á stórum vettvangi, heldur líka í nærumhverfinu okkar og þar gegna bókasöfn lykilhlutverki.
Á bókasöfnum víðs vegar um landið verða haldnir fjölbreyttir viðburðir í Viku 17 sem bjóða fólki að taka þátt, fræðast og kynnast heimsmarkmiðunum á lifandi og aðgengilegan hátt.. Frekari upplýsingar fyrir Viku 17 má nálgast á vefsíðu Upplýsingar, fagfélags á sviði bókasafns- og upplýsingafræða.